Viðskipti innlent

Fjögurra milljóna dollara leikur gegn Króatíu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Það er töluvert undir leiknum á morgun.
Það er töluvert undir leiknum á morgun. Vísir/Vilhelm
Takist íslenska landsliðinu að tryggja sig upp úr D-riðli Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu í Rússlandi með hagstæðum úrslitum gegn Króötum á morgun tryggja Strákarnir okkar KSÍ minnst fjóra milljón dollara í viðbót við það verðlaunafé sem þegar hefur verið eyrnamerkt sambandinu.

Sé miðað við gengi dagsins eru það um 430 milljónir króna sem bætast við þær átta milljónir dollara sem KSÍ hefur þegar tryggt sér, um 860 milljónir króna, í verðlaunafé með því að taka þátt í riðlakeppni HM. Ýmislegt þarf þó að ganga upp svo að Íslandi verði með í 16-liða úrslitum.

Tekin var ákvörðun um greiðslur frá FIFA til þeirra þjóða sem taka þátt í lokakeppni HM á síðasta ári en alls hefur FIFA eyrnamerkt 400 milljónir í verðlaunafé á mótinu sem greitt verður út að því loknu.

Liðin sem taka þátt í riðlakeppninni fá líkt og fyrr segir átta milljónir dollara í sinn hlut, liðin sem detta út í 16-liða úrslitum fá samtals tólf milljónir dollara, um 1,3 milljarða króna. Þau lið sem detta út í fjórðungsúrslitum fá samtals 16 milljónir dollara í sinn hlut, 1,7 milljarða króna og svona mætti áfram telja.

Það lið sem stendur uppi sem sigurvegari fær samtals 38 milljónir dollara í verðlaunafé frá FIFA, um 4,1 milljarð króna en nánari útlistun má nálgast hér.

Landsliðið æfði á vellinum í Rostov-við-Don í dag þar sem leikurinn gegn Króatíu fer fram.Vísir/Vilhelm

KSÍ þegar tryggt sér rétt rúman milljarð

Þá fær hvert lið 1,5 milljónir dollara frá FIFA í svokallaðan undirbúningskostnað, um 160 milljónir króna. Er sá kostnaður ætlaður til þess að dekka kostnað sem fellur á samböndin vegna mótsins.

KSÍ hefur því tryggt sér minnst 9,5 milljónir dollara frá FIFA vegna mótsins, rétt rúman milljarð og fer sú upphæð í að lágmarki 13,5 milljón dollara, 1,45 milljarða króna, takist liðinu að komast í 16-liða úrslit. Þó má reikna með að kostnaður KSÍ vegna mótsins sé talsverðurenda er litlu til sparað í tengslum við mótiðog hafa landsliðsmenn og þjálfarar hrósað starfsmönnumKSÍ fyrir góðan undirbúning.

Einnig má reikna með því að aðildarfélög KSÍ njóti góðs af velgengni landsliðsins enalls úthlutaði KSÍ 453 milljónum af verðlaunafénusem fékkst vegna þáttöku liðsins á EM fyrir tveimur árum til aðildarfélaga sinna. Um tveir milljarðar króna voru greiddir til KSÍvegna góðs árangurs á EM þar sem liðið komst í átta liða úrslit.

Þá er ljóst að leikmenn landsliðsins munu fá sinn skerf af verðlaunafénu enda tíðkast það að samið sé um bónusgreiðslur til leikmanna í tengslum við þátttöku á stórmótum, líkt og gert var fyrir EM.


Tengdar fréttir

Félögin fá 453 milljónir frá KSÍ vegna EM

KSÍ tilkynnti í dag að búið væri að úthluta 453 milljónum króna til aðildarfélaga KSÍ en þetta er hluti af peningunum sem KSÍ fékk út af frábærum árangri karlalandsliðsins á EM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×