Innlent

Líkur á breytingum vegna klofnings Sjálfstæðismanna í Eyjum

Jóhann K. Jóhannsson og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Miðað við skoðunarkönnun Fréttablaðsins í lok apríl mælist Elliði Vignisson ekki inni í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili.
Miðað við skoðunarkönnun Fréttablaðsins í lok apríl mælist Elliði Vignisson ekki inni í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili. Skjáskot/Stöð 2
Líkur eru á töluverðum breytingum í bæjarstjórn Vestmannaeyja að loknum kosningum. Titringur er í bæjarfélaginu og segir oddviti Eyjalistans kosningabaráttuna hingað til hafa einkennst af klofningi í Sjálfstæðisflokknum.

Mikil spenna er fyrir komandi bæjarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum þar sem þrír listar eru í framboði. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft hreinan meiri hluta í eyjum frá 2006 þegar Elliði Vignisson, núverandi bæjarstjóri leiddi listann til sigurs með 73,2% atkvæða á móti 26,8% atkvæða Eyjalistans.

Sú ákvörðun að stilla upp lista en ekki fara í prófkjör í flokknum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar olli miklum titringi í flokknum og endaði með klofningsframboði H-listans, fyrir Heimaey, þar sem Íris Róbertsdóttir situr í oddvita sæti. Í könnun Fréttablaðsins 24. apríl síðastliðinn mældist Sjálfstæðisflokkurinn með 41,2% atkvæða á móti 25,4% atkvæða Eyjalistans. Nýja nýja framboðið mældist með 31,9% atkvæða.

Oddviti Eyjalistans segir kosningabaráttuna hingað til hafa snúist um klofninginn innan Sjálfstæðisflokksins.

„Þær hafa gert það að ákveðnu marki svona hingað til. Það er svolítið sérstakt að sveitastjórnarkosningar snúist um þennan eða hinn arminn í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Njáll Ragnarsson.

„Félagið er ekki stofnað sem klofningsframboð frá Sjálfstæðisflokki. Þetta er bæjarmálafélag og það er fólk úr öllum áttum með breiða skírskotun og við erum bara þarna til að gera þetta sveitarfélag betra og tilbúin til að leggja á okkur ýmislegt til að það geti gerst,“ segir íris Róbertsdóttir oddviti H-listans, Fyrir Heimaey.

Lýðræðisleg stofnun

„Nei, þetta hefur nú ekki ennþá farið illa með hann,“ svarar Elliði Vignisson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, aðspurður hvort málið hafi farið illa með Sjálfstæðisflokkinn í Eyjum.

„Sjálfstæðisflokkurinn er lýðræðisleg stofnun og ákvörðun um hvernig gengið er frá lista er gert á fundum.“ Elliði setti sjálfan sig í fimmta sæti á lista og er bæjarstjóraefni flokksins. Miðað við skoðunarkönnun Fréttablaðsins í lok apríl mælist hann ekki inni í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili og ljóst að ákvörðun flokksins um prófkjörsleiðina mun hafa afleiðingar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×