Innlent

Ljósmæður gapandi og orðlausar yfir bréfi ráðuneytisins

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ljósmæður í Reykjavík og á Akureyri hafa ákveðið að falla frá aðgerðum um yfirvinnubann eftir að fjármálaráðuneytið lýsti því yfir að þessar aðgerðir væru ólöglegar. Þær eru gapandi og orðlausar vegna málsins.

Meirihluti ljósmæðra á fæðingar-og meðgöngudeildum í Reykjavík og á Akureyri lýsti því yfir í gær að þær ætluðu ekki að taka að sér yfirvinnu frá 1. maí fyrr en fyrr en kjarasamningur mili ríkisins og Ljósmæðrafélags Íslands lægi fyrir. Aðgerðirnar hófust eftir miðnætti.

Um hádegi í dag barst tilkynning frá ljósmæðrum á Landspítalanum um að þær neyddust til að hætta aðgerðum. Ljósmæðrafélaginu hefði borist bréf frá ríkisvaldinu þess efnis að að aðgerðir ljósmæðra væru með öllu óheimilar.

Í bréfinu frá Fjármála-og efnahagsráðuneytinu sem fréttastofa hefur undir höndum er meðal annars skorað á Ljósmæðrafélag Íslands að beita sér fyrir því að aðgerðum ljósmæðra verði hætt ella muni ráðuneytið grípa til viðeigandi réttarúræða.

Áslaug Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélagsins, sendi svar í dag þar sem kemur fram að félagið standi ekki fyrir ólögmætum aðgerðum og hafni þeim aðdróttunum. Þá er skorað á ljósmæður að standa ekki að slíkum aðgerðum.

Ljósmóðir á Landspítalanum segir félagið ekki aðila að málinu. Ljósmæður séu forviða yfir bréfi fjármálaráðuneytisins.

„Við erum eiginlega bara gapandi, gáttaðar og orðlausar. Það er eins og við megum bara ekki neitt og maður spyr sig erum við í Norður-Kóreu eða erum við á Íslandi?“ segir Guðrún Gunnlaugsdóttir, ljósmóðir á Landspítalanum.

Hún segir að ljósmæður hafi neyðst til að hætta aðgerðum.

„Við neyddumst til að senda aðra tilkynningu í dag, 1. maí, svolítið táknrænn dagur, þar sem við erum að reyna að berjast en fólk er barið niður,“ segir Guðrún.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×