Innlent

Miðflokkurinn og VG hnífjöfn í nýrri könnun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Líf Magneudóttir leiðir lista VG og Vigdís Hauksdóttir fer fyrir Miðflokknum.
Líf Magneudóttir leiðir lista VG og Vigdís Hauksdóttir fer fyrir Miðflokknum. Vísir
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með ríflega 30 prósent fylgi í nýrri könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is hafa gert á meðal kjósenda í Reykjavík. Hann yrði stærsti flokkurinn í Reykjavík ef þetta yrðu niðurstöðurnar. Samfylkingin fylgir fast á hæla honum með tæplega 26 prósent fylgi. Píratar eru þriðji stærsti flokkurinn með tæplega 11 prósent fylgi. VG og Miðflokkurinn mælast svo með tæplega átta prósent fylgi og Viðreisn með rúmlega sjö prósent. Framsóknarflokkurinn mælist með 3,6 prósent fylgi.

Yrðu þetta niðurstöðurnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn átta menn kjörna, Samfylkingin fengi sjö menn, Píratar, VG og Miðflokkurinn fengju tvo menn hver. Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins gæti Viðreisn fengið tvo menn kjörna. Hins vegar er Framsóknarflokkurinn hársbreidd frá því að ná öðrum manninum af Viðreisn og yrði það þá eini maðurinn sem Framsóknarflokkurinn fengi kjörinn.

Með þessar niðurstöður er ljóst að þeir flokkar sem mynda meirihlutann í borgarstjórn og bjóða fram lista í vor, það er Samfylkingin, Píratar og VG, myndu fá ellefu menn kjörna af 23. Það þýðir að þeir myndu þurfa að fá fjórða flokkinn til liðs við sig til að ná meirihluta.

Allt að sautján framboð hyggja á framboð í borgarstjórnarkosningunum 26. maí. Af öðrum framboðum má nefna að Kvennaframboðið nýtur 1,4 prósenta stuðnings í könnuninni, Sósíalistaflokkurinn er með eitt prósent og Flokkur fólksins eitt prósent. Önnur framboð eru með minni stuðning. Það vekur hins vegar athygli að samtals nefna 7,4 prósent þeirra sem afstöðu taka í könnuninni önnur framboð en þau sem myndu fá kjörna menn.

Hringt var í 1.017 manns með lögheimili í Reykjavík þar til náðist í 801 samkvæmt lagskiptu úrtaki 24. apríl. Svarhlutfallið var 78,8 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir aldri. Alls tóku 50,8 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Þá voru 11,3 prósent sem sögðust ekki ætla að kjósa eða ætla að skila auðu, 16,6 prósent sögðust óákveðin og 21,3 prósent vildu ekki svara spurningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×