Innlent

„Selja sig ódýrt niður á þingi fyrir þrjá ráðherrastóla“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ágúst Ólafur Ágústsson.
Ágúst Ólafur Ágústsson. Vísir/Stefán
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir þá þingmenn Vinstri grænna sem kusu gegn vantrauststillögu á hendur Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra. Hann segir afstöðu þeirra þingmanna VG sem greiddu atkvæði með tillögunni meira í ætt við stefnu flokksins en þeirra sem greiddu atkvæði gegn.

„Við sjáum skoðanakönnun þar sem 92 prósent af kjósendum Vinstri grænna vilja að Sigríður Andersen dómsmálaráðherra segi af sér. Afstaða Rósu Bjarkar og Andrésar er í fullkomnu samræmi við vilja kjósenda Vinsti grænna,“ sagði Ágúst sem var gestur í Víglínunni ásamt Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þingmanni VG, sem kaus með tillögunni.

Þar ræddu þau vantrauststillögunna sem felld var með 33 atkvæðum gegn 29 í vikunni. Andrés og Rósa Björk hafa verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki greitt atkvæði gegn tillögunni, líkt og aðrir stjórnarþingmenn gerðu. Sagði þingflokksformaður VG að afstaða þeirra væri visst áfall.

Ágúst gaf lítið fyrir þessa gagnrýni og sagði afstöðuna endurspegla stefnu VG, það væri þingflokkurinn sem væri að ganga gegn stefnu flokksins til þess að ganga úr skugga um að ríkisstjórnin héldi.

„Þess vegna er þetta enn eitt dæmi um að menn selja sig ódýrt niður á þingi fyrir þrjá ráðherrastóla,“ sagði Ágúst sem nefndi einnig að athyglisvert væri að hlusta á forsvarsmenn VG tala fyrir nýrri fjármálastefnu sem væri að hans mati afar keimlík fjármálaætlun Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar sem sátu í síðustu ríkisstjórn.

„Nú gera þær lítisháttar breytingar og þá er það allt í einu orðið góð stefna. Þess vegna hef ég verið svolítið gagnrýninn á vini mína í Vinstri grænum, til hvers var barist eiginlega? Til hvers voruð þið að fara í þessa ríkisstjórn, sérstaklega ef maður fer aftur í tímann þar sem það var annar valkostur á borðinu. Þess vegna er maður ósáttur við þetta val Vinstri grænna að fara í þetta samkrull með Sjálfstæðisflokknum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×