Sport

Árni Björn sló í gegn

Telma Tómasson skrifar
Árni Björn Pálsson.
Árni Björn Pálsson. Stöð 2 Sport
Afreksknapinn Árni Björn Pálsson sýndi yfirburðar reiðmennsku, mýkt, þjálni og vel útfærðar fimiæfingar á Flaumi frá Sólvangi í keppni í gæðingafimi í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum sem fram fór í TM Reiðhöllinni í Víðidal í gærkvöldi. Hann uppskar enda fyrsta sætið og var mjög sáttur með frammistöðuna.

„Það er svolítið langt síðan ég hef staðið á efsta pallinum,“ sagði Árni Björn þegar sigurinn var í höfn. „Ég er búinn að leggja mikið á mig með þennan hest og er gríðarlega stoltur af því hvað hann er kominn langt. Þetta var bara svakalega skemmtilegt.“

Það er mál manna að gæðingafimi sé að festa sig í sessi sem keppnisgrein í hestaíþróttum, en  greinilegur faglegur stígandi er í sýningum og útfærslum knapanna með hesta sína. Keppnisgreinin hefur ekki verið í jafn háum gæðaflokki áður.

Sýningu Árna Björns og Flaums í A-úrslitum má sjá í meðfylgjandi myndskeiði, en keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.

Niðurstöður A-úrslita í gæðingafimi í Meistaradeild Cintamani í hestaíþróttum voru eftirirfarandi:

1. Árni Björn Pálsson    Flaumur frá Sólvangi        8.23    

2. Julio Borba    Glampi frá Ketilsstöðum        7.91    

3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir    Óskar frá Breiðstöðum        7.59    

4. Viðar Ingólfsson    Pixi frá Mið-Fossum        7.49    

5. Mette Mannseth    Karl frá Torfunesi    7.48    

6. Sylvía Sigurbjörnsdóttir    Héðinn Skúli frá Oddhóli    7.31



Staðan í einstaklingskeppninnni

Jakob Svavar Sigurðsson hafði tekið afgerandi forystu í stigasöfnun í einstaklingskeppninni og leiðir enn með nokkrum mun. Hins vegar er hlaupin spenna aftur í keppnina eftir gæðingafimina og nú er allt galopið á ný, en stigahæsti knapinn vinnur Meistaradeildina hverju sinni. Staðan eftir gærkvöldið lítur svona út:

Einstaklingskeppni    

Jakob Svavar Sigurðsson    36 stig

Árni Björn Pálsson    26,5 stig

Viðar Ingólfsson    26 stig

Elin Holst    18,5 stig

Sylvía Sigurbjörnsdóttir    18 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×