Skoðun

Hugarafl

Óttar Guðmundsson skrifar
Þegar ég skrifaði bókina um sögu Klepps í 100 ár, fyrir áratug, lá ég í sjúkraskrám, las bréf sjúklinga, lækna og aðstandenda og setti mig inn í veruleika fólksins sem lifði og dó á spítalanum. Þetta var umfangsmikil vinna og oft var ég sorgmæddur yfir grimmilegum örlögum fólksins. Fordómar voru miklir og aðstöðuleysi yfirgengilegt. Sjúklingarnir voru dæmdir til einhæfrar tilveru innan veggja spítalans.

Smám saman breyttist þessi mynd og sjúklingunum tókst að komast aftur út í samfélagið, oft með hjálp nýrra lyfja. Meðferðin breyttist og sjúklingurinn varð í æ ríkari mæli þátttakandi í henni. Spítalinn tók stakkaskiptum en auk þess komu til sögunnar öflug sjúklingasamtök sem áttu ríkan þátt í að byggja upp sjálfsmynd þessa hóps. Ein þessara samtaka eru Hugarafl. Þau voru stofnuð undir kjörorðinu að neytandi þjónustunnar væri best fær um að hjálpa öðrum neytendum.

Margir sjúklinga minna fengu nýtt líf fyrir tilstilli Hugarafls. Þeir fengu aukið sjálfstraust og þekkingu um sitt ástand og sinn sjúkdóm. Þeir lærðu að veikleikar eru oft styrkleikar og öfugt. Smám saman lærði læknirinn að þekkja úr þá sem höfðu tileinkað sér hugmyndafræði Hugarafls. Þeir spurðu meira en aðrir og tóku ekki öllu sem algildum sannleika. Menn sveifluðu um sig nýjum hugtökum eins og batahugmyndafræði og valdeflingu sem læknum voru ókunn. Hugarafl hefur breyst frá þessum upphafsárum sínum en enn er grunnhugmyndafræðin sú sama. Ég hef alltaf hrifist af eldmóði Hugarafls þótt ég hafi ekki alltaf verið sammála hugmyndafræði samtakanna.

Nú berast þær fréttir að leggja eigi niður geðteymi, Geðheilsu-eftirfylgd, sem starfað hefur við hlið Hugarafls og flytja þá starfsemi sem þar er rekin út á heilsugæslustöðvarnar. Saman hafa þessir tveir hópar sinnt öflugri samfélagsgeðþjónustu og rutt brautina fyrir nýrri nálgun. Ég held að með því að leysa þessa þjónustu upp glatist mikið af eldmóðnum og þeirri reynslu sem búið er að afla með blóði, svita og tárum liðinna ára. Brautryðjendastarf teymisins og Hugarafls hefur skilað góðum árangri. Miklu skiptir að kasta því ekki á glæ. Starf frjálsra félagasamtaka verður sjaldnast flutt inn á opinberar stofnanir án þess að glata ferskleika sínum og sveigjanleika. Hugmyndafræði Hugarafls um neytandann sem réttir öðrum neytanda hjálparhönd á jafn mikið erindi í dag og fyrir 10 árum.

Höfundur er geðlæknir




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×