Innlent

Vantrauststillaga Samfylkingar og Pírata felld

Heimir Már Pétursson og Hulda Hólmkelsdóttir skrifa
Sigríður Á. Andersend, dómsmálaráðherra.
Sigríður Á. Andersend, dómsmálaráðherra. VISIR/ANTON BRINK

Vantrauststillaga Samfylkingarinnar og Pírata á Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, var felld í atkvæðagreiðslu á Alþingi eftir tveggja tíma umræður. Flokkarnir tveir telja að dómsmálaráðherra hafi veikt stöðu dómskerfisins á Íslandi með vinnubrögðum sínum. Tillagan var felld með 33 atkvæðum gegn 29.

Allir þingmenn stjórnarandstöðunna greiddu atkvæði með tillögunni nema Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sem valdi að greiða ekki atkvæði.

Tveir þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði með tillögunni, þau Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson. Þau lögðust einnig gegn ríkisstjórnarsamstarfi Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þegar það var lagt fyrir flokksráð flokksins til samþykktar í haust. Sagði Andrés Ingi í ræðu sinni að honum hefði þótt Landsréttarmálið slæmt í nóvember og að síðan hefði það aðeins versnað.

Þingflokkar Samfylkingarinnar og Pírata lögðu fram vantrauststillöguna á dómsmálaráðherra í morgun vitandi að litlar líkur væru á að hún næði fram að ganga. En tillagan er lögð fram vegna skipunar ráðherra á dómurum í nýjan Landsrétt. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar sagði dómsmál vegna skipunar dómaranna afleiðingu af vinnubrögðum ráðherra.

„Þess vegna er dómsmálaráðherra ekki treystandi til að fara með málefni dómstólanna í landinu eða vinda ofan af þeim vandræðagangi sem dómstólar eru komnir í. Hún verður því að axla ábyrgð á þeim og það er nauðsynlegt að það birtist með skýrum hætti,“ sagði Logi.

Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði nánast óþekkt í þingsögunni að vantraust væri borið upp á einstakan ráðherra þótt mikið hafi gengið á. Það hefði ekki gerst síðan árið 1954.

„Samfylkingin var fljót að bregðast við hvatningu fyrrverandi leiðtoga síns. Eða ætti ég að segja viðvarandi leiðtoga, Jóhönnu Sigurðardóttur, frá því um síðustu helgi. Þar var kallað eftir því að Samfylkingin beindi spjótum sínum að Sjálfstæðisflokknum. Og viti menn, í fyrsta skipti í hálfa öld kom fram vantrauststillaga á ráðherra, jú ráðherra úr Sjálfstæðisflokknum,“ sagði Bjarni Benediktsson.

Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata segir dómsmálaráðherra hafa skapað réttaróvissu í landinu með því að skemma ferli sem faglega hafi verið unnið að.

„Það eru svik við þá sem hafa unnið að þessu allar götur. Það eru svik við Alþingi. Það eru svik við samstarfsflokkana, það eru svik við stjórnskipunar og eftirlitsnefnd. Það eru svik við þá sem vinna í stjórnsýslunni okkar, að reyna að gera faglega hluti þar og ráðleggja ráðherra. Og það eru svik við dómnefndina; hvernig komið hefur verið fram við hana. Þessi ráðherra hefur svikið alla aðila í þessu ferli,“ sagði Jón Þór.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði óvissu í þessum málum aðeins verða eytt með því að dómstólar ljúki sinni meðferð á þeim. Rök með vantraustinu væru ekki fullnægjandi.

„Þar með er ég ekki að draga úr alvarleika dóms Hæstaréttar eða því að vönduð vinnubrögð séu stunduð í stjórnsýslunni. Ég tel hins vegar að þessi tillaga þjóni ekki slíkum markmiðum og ég mun því greiða atkvæði gegn þessari tillögu,“ sagði Katrín.

Fréttin var síðast uppfærð klukkan 19:24.


Tengdar fréttir

Telur að hún hafi stuðning þingsins

Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, segist ávallt fagna því að geta rætt sín störf en Samfylkingin og Píratar hafa lagt fram vantrauststillögu á ráðherrann vegna Landsréttarmálsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×