Viðskipti innlent

Hagar drógu samrunatilkynningu til baka á síðustu stundu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hagar undirrituðu kaupsamning um kaup á öllu hlutafé Olís í apríl á síðasta ári.
Hagar undirrituðu kaupsamning um kaup á öllu hlutafé Olís í apríl á síðasta ári. Vísir/Anton Brink
Hagar hafa afturkallað samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirhugaðrar sameiningu Haga, Olís og fasteignafélagsins DGV ehf. Ekki er búið að hætta við samrunann þar sem Hagar ætla að senda inn nýja samrunatilkynningu.

Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið haft til rannsóknar fyrirhuguð kaup Haga á Olís og DGV á grundvelli samrunatilkynningar sem send var eftirlitinu í lok september 2017. Var rannsóknin á lokastigi og ákvörðunar að vænta í dag.

Högum barst andmælaskjal vegna málsins frá Samkeppniseftirlitinu, sem liður í málsmeðferð þess á samrunanum, og gekk til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið til úrlausnar á þeim þáttum sem taldir eru raska samkeppni og koma fram í frummati Samkeppniseftirlitsins. Þær sáttaviðræður skiluðu hins vegar ekki endanlegri niðurstöðu innan tímafrests eftirlitsins.

Í tilkynningu frá Högum til Kauphallar segir að stjórn Haga hafi ákveðið að afturkalla samrunatilkynningu vegna málsins og mun á næstunni senda Samkeppniseftirlitinu nýja samrunatilkynningu, á breyttum grundvelli.

Þar segir einnig að hin nýja samrunatilkynning muni bjóða skilyrði sem muni vera möguleg lausn á þeirri frumniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að samruninn raski samkeppni.

Kaupsamningurinn er háður fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og því verður ekki frá kaupum Högum á Olís og DGV fyrr en afstaða Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir.


Tengdar fréttir

Búa sig undir Costco með kaupum á Olís

Hagar skrifuðu í gær undir kaup á Olís fyrir 15 milljarða króna. Forstjóri Haga segir félagið betur í stakk búið til að takast á við samkeppni.

Hagar kaupa Olís

Félagið starfrækir það um 115 starfsstöðvar á um 50 stöðum á landinu, aðallega undir merkjum Olís, ÓB og Rekstrarlands. Þá á Olís 40% í Olíudreifingu ehf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×