Lífið

Jafnrétti er ekki einkamál kvenna

Sigyn Jónsdóttir, formaður UAK, segir fólk loksins tilbúið að ræða jafnréttismál opinskátt.
Sigyn Jónsdóttir, formaður UAK, segir fólk loksins tilbúið að ræða jafnréttismál opinskátt.
UAK eru grasrótarsamtök sem voru stofnuð árið 2014 með það í huga að efla tengslanet kvenna og berjast fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og jafnvægi í umræðunni. Við erum sex í stjórninni og ég tók við sem formaður á síðasta ári. Hún segir starfsemi félagsins fjölbreytta. „Ef þú ert félagskona í UAK hefurðu aðgengi að einum til tveimur viðburðum í mánuði hjá okkur, við hittumst á málstofum, höldum námskeið og reynum að fá til okkar sterkar fyrirmyndir úr atvinnulífinu því það skiptir miklu máli þegar kona er að taka fyrstu skrefin. Það er einstakt að fá tækifæri til að hitta konur sem stýra stærstu fyrirtækjum landsins og spyrja þær um reynslu þeirra og hvaða hindranir hafa verið í veginum.“

Hún segir starfsemina ganga mjög vel. „Það er mjög jákvæð umræða í samfélaginu varðandi jafnrétti og mér finnst fólk loksins vera tilbúið að ræða þessi mál opinskátt. Með tilkomu byltinga eins og #metoo og #höfumhátt og fleiri á undanförnum árum hefur opnast einhver vídd þar sem fólk kemst ekki lengur upp með að standa fyrir utan umræðuna.“

Næsti viðburður samtakanna verður í Ægisgarði 8. febrúar. „Við munum notast við Barbershop-verkfærakistu sem þróuð var fyrir UN Women árið 2015 sem hluti af #heforshe herferðinni. Verkfærakistan er notuð til að halda viðburði sem hafa það að markmiði að auka þátttöku karla í umræðunni og baráttunni fyrir kynjajafnrétti. Vinnustofan verður byggð á leiðtogaverkfæri sem miðar sérstaklega að aukinni þátttöku stjórnenda og verður þetta í fyrsta skipti í heiminum sem slík vinnustofa er haldin fyrir ungt fólk. Eðli málsins samkvæmt er best að hafa jafnt kynjahlutfall í vinnustofunni svo við hvetjum alla til að taka með sér gest af öðru kyni.“ Nánari upplýsingar má finna á uak.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×