Innlent

RÚV rannsakar leka sem tengist Söngvakeppninni

Birgir Olgeirsson skrifar
Svala Björgvinsdóttir og Ragnhildur Steinunn á sviði í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Svala hafði sigur í keppninni en Ragnhildur Steinunn var kynnir hennar.
Svala Björgvinsdóttir og Ragnhildur Steinunn á sviði í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra. Svala hafði sigur í keppninni en Ragnhildur Steinunn var kynnir hennar. Vísir
Listinn yfir lög og flytjendur sem keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár hefur verið birtur á erlendum vefsíðum og er Ríkisútvarpið að rannsaka hvernig upplýsingunum var lekið.

Einhverjir höfðu hlaðið nokkrum lögum sem verða í keppninni í ár inn á YouTube en forsvarsmenn keppninnar segjast hafa látið loka þeim síðum. Rekur RÚV lekann til rússneskrar síðu.

Birna Ósk Hansdóttir, framleiðslustjóri RÚV, segir í samtali við Vísi að verið sé að skoða hvernig þetta gat gerst, en ekki átti að birta listann yfir flytjendur og lög fyrr en klukkan 19:40 í Sjónvarpinu í kvöld.

„Það virðist vera að þetta sé eitthvað sem kom úr rafrænum sendingum milli framkvæmdaaðila. Að einhver hafi komist í Dropbox-tengla sem verið var að senda á milli,“ segir  Birna.

Hún segir þetta ekki tengjast vefkerfi Ríkisútvarpsins heldur að einhver hafi í raun komist inn í tölvupóst einhverra úr framkvæmdastjórn Söngvakeppninnar. „Þetta byrjar á rússneskri síðu en við vitum ekki nákvæmlega hvað gerðist. Við erum bara að reyna að komast að því,“ segir Birna og bætir við að lokum að auðvitað sé það á endanum gott að svo mikill áhugi sé á Söngvakeppninni erlendis frá að einhver sé tilbúinn til að reyna svona lagað til að komast yfir lögin í keppninni í ár.

Fyrirkomulag keppninnar verður með svipuðu sniði og fyrri ár. Forkeppnin fer fram 10. og 17. febrúar í Háskólabíó þar sem þrjú lög komast áfram í úrslitin sem fara fram 3. mars í Laugardalshöll. Sigurvegarinn verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Portúgal í maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×