Innlent

Segir eftirliti með fiskeldi ábótavant

Aron Ingi Guðmundsson skrifar
Vistfræðingur kallar eftir auknu eftirliti með fiskeldi.
Vistfræðingur kallar eftir auknu eftirliti með fiskeldi. vísir/pjetur
Eftirliti með fiskeldisfyrirtækjum er ábótavant að mati Christians Gallo, vistfræðings hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Hann segir að mengun vegna uppsafnaðs úrgangs frá fiskeldi sé fylgifiskur slíkrar starfsemi, en þó ekki mesta áhyggjuefnið.

„Það sem veldur mestum áhyggjum er laxalúsin, sjúkdómar í eldislaxi og það að eldislax sleppur úr kvíum. Og eftirlit með fiskeldi virkar ekki vel þegar fyrirtækin ákveða að fylgja ekki ákveðnum alþjóðlegum stöðlum. Þá eru ekki fyrir hendi nein ákveðin viðmið um hvað sé ásættanlegt ástand og hvað ekki. Einnig virðast ekki vera til reglur um hvað skuli gera þegar svæði koma illa út úr svokallaðri umhverfisvöktun. Það er til dæmis ekkert sem skyldar fyrirtæki til að hvíla svæði varðandi áframhaldandi fiskeldi komi það illa út úr athugun.“

Christian segir að Náttúrustofa Vestfjarða sinni umhverfisvöktun fyrir ýmis fiskeldisfyrirtæki en ekki fyrir Arnarlax. „Við sinntum umhverfisvöktun fyrir Arnarlax en gerum það ekki lengur. Þeir hjá Arnarlaxi óskuðu eftir að slíta því samstarfi.“

Náttúrustofa Vestfjarða birti skýrslu sem sýndi að botndýralíf í Patreksfirði hafði tekið miklum breytingum vegna uppsafnaðs lífræns úrgangs frá laxeldi Arnarlax við Hlaðseyri. Samkvæmt frétt Fréttablaðsins í septembermánuði síðastliðnum hafði Arnarlax reynt að fá svokallaða ASC-staðlaða umhverfisvottun en tókst það ekki.

Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri Arctic Sea Farm, segir eftirlit gott hjá fyrirtækinu. „Við hjá Arctic Sea Farm erum með svokallaða ASC-umhverfisvottun fyrir eldisafurðir. Þetta er strangasti umhverfisstaðall sem er í gangi í dag í fiskeldi og við erum eina íslenska fyrirtækið sem er með þennan staðal.“ Sigurður segir að þrír utanaðkomandi aðilar sinni eftirliti hjá Arctic Sea Farm.

„Umhverfisstofnun kemur bæði í skipulagt og óvænt eftirlit og svo líka Matvælastofnun. Svo kemur líka erlendur aðili einu sinni á ári í úttekt varðandi ASC-staðalinn,“ segir Sigurður. Ekki náðist í forsvarsmenn Arnarlax við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×