Viðskipti innlent

Svali Björgvins hættir hjá Icelandair

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Svali Björgvinsson við samningaborðið í kjaradeilu flugvirkja Icelandair á dögunum.
Svali Björgvinsson við samningaborðið í kjaradeilu flugvirkja Icelandair á dögunum. Vísir/Anton Brink
Svali H. Björgvinsson hefur ákveðið að söðla um og hætta sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs hjá Icelandair. Þetta kom fram í bréfi sem Svali sendi kollegum sínum hjá flugfélaginu í gærkvöld.

Svali hefur starfað hjá Icelandair í nær átta ár en hann átti sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra í lok janúar 2009 en þar áður var hann hjá Kaupþingi frá árinu 2003. Gegndi hann sömuleiðis stöðu framkvæmdastjóra starfsmannasviðs hjá bankanum. Þar áður var Svali ráðgjafi og meðeigandi hjá PricewaterhouseCoppers. 

Svali nam sálfræði við Háskóla Íslands og vinnusálfræði og stjórnun frá New York University. Svali hefur auk þess kennt mikið við Háskóla Íslands og haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra. 

Þá er Svali löngu orðinn landsþekktur fyrir lýsingar sínar á körfuboltaleikjum í gegnum tíðina.


Tengdar fréttir

Svali til Icelandair

Svali H. Björgvinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Icelandair. Hann mun jafnframt sinna stefnumótun félagsins og sitja í framkvæmdastjórn þess. Svali tilkynnti samstarfsmönnum sínum í gær hjá Kaupþingi að hann hefði samið um starfslok hjá bankanum.

Svali yfirgefur Kaupþing

Svali Hrannar Björgvinsson, starfsmannastjóri hjá Kaupþingi, hefur samið um starfslok hjá bankanum. Þetta kemur fram í bréfi sem Svali sendi starfsmönnum bankans í dag. Í bréfinu kemur fram að hann hafi samið við Finn Sveinbjörnsson bankastjóra um að ljúka ýmsum verkefnum áður en hann hverfi á braut. Hann láti því ekki alveg strax af störfum.

Þetta er lögreglumál! | Arnar og Svali fara á kostum

Það var mikið fjör í Ljónagryfjunni í gær þegar oddaleikur Njarðvíkur og Stjörnunnar í Dominos-deild karla fór fram. Njarðvík vann að lokum, 92-73, og tryggði sér þar af leiðandi sæti í undanúrslitum keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×