Innlent

Heppni að enginn hafi verið á veiðum á þeim stað sem skriðan féll

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Heppni er að enginn hafi verið á veiðum þegar skriða féll úr fagraskógarfjalli í Hlíðardal, en skriðan féll yfir veiðisvæði.

Skriðan lagðist þvert yfir Hítará og stíflaði ána. Björgunarsveitin var á svæðinu ásamt þyrlu landhelgisgæslunnar og lögreglu sem lokaði fyrir umferð þar sem hætta var á flóði.

Stórt lón myndaðist hjá skriðunni en eftir því sem það fór hækkandi fann áin sér nýjan farveg og rann meðfram skriðunni í ánna Tálma.

Þá segir veðurfræðingur að skriðan sé afleiðing mikils rigningarsumars, en um 200 millimetrar regns hafi mælst í Fíflholti, nærri Hítardal frá maímánuði.

Ólafur Sigvaldason, formaður Veiðifélags Hítarár segir heppni að ekki hafi verið fólk að veiðum, en um góðan veiðistað sé að ræða sem varð undir skriðunni.

„Það eru veiðistaðir á þeim stað sem skriðan réð yfir, góðir veiðistaðir. Þetta er gjörbreytt landslag og er Hítará þornuð upp á 8-10 kílómetra kafla.  Það verður að koma í ljós hvernig þetta þróast en ljóst er að ákveðnir veiðistaðir eru úr leik,“ segir Ólafur Sigvaldason, formaður veiðifélags Hítarár.

Töluvert lón hefur myndast við skriðuna.Mynd/Sumarliði Ásgeirsson
Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni segir hrunið hafa byrjað fyrr en sérfræðingar héldu í gær. „Svo virðist hrunið hafi byrjað fyrr en menn héldu, samkvæmt refaskyttu sem hafði samband við okkur, en hún varð vitni af skriðu fyrr um nóttina. Skriðan hefur þá fyrst runnið á föstudagskvöldinu upp úr miðnætti en ekki undir morgun laugardags eins og sérfræðingar héldu,“ segir Sigþrúður Ármannsdóttir.

Að sögn Sigþrúðar eru veðurskilyrði slæm í Hítardal, í ljósi þess fer öll vinna sérfræðinga hægt af stað. Vegna stöðugra rigningar sé von á áframhaldandi hrynu.

Skriðan rann yfir farveg Hítarár sem stíflaðist.Jón G. Guðbrandsson

Tengdar fréttir

Hítará hefur fundið sér nýjan farveg

Íbúi í Hítardal segir vatnið leita út í Tálma, hliðará Hítarár. Það sé sá farvegur sem íbúar hafi verið að vona að áin fyndi sér fram hjá skriðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×