Í tilkynningu frá umboðsskrifstofu Chambers kemur fram að leikkonan hafi látist af náttúrulegum orsökum.
„Hún færði okkur hlátur og hamingju,“ segir auk þess í tilkynningunni. Fulltrúar umboðsskrifstofunnar biðja almenning vinsamlegast um að veita fjölskyldunni svigrúm og næði á þessum erfiðu tímum.
Emma Chambers hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum en hún er einna helst þekkt fyrir að leika Alice Tinker í vinsælli þáttaröð breska ríkisútvarpsins BBC, The Vicar of Dibly. Þá minnast eflaust margir leikkonunnar fyrir frammistöðu hennar í rómantísku gamanmyndinni Notting Hill.
Chambers lék Honey í Notting Hill en hún var litla systir aðalpersónunnar sem Hugh Grant lék.
Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá brot úr myndinni.