Skoðun

Hræsnin um launin

Gunnlaugur Stefánsson skrifar

Forseti Alþýðusambands Íslands býsnast yfir launum biskups Íslands og alþingismanna, telur kjararáð, sem ákveður launin þeirra, vera á algjörum villigötum, skilur ekkert í hvaða vinnumarkað ráðið miði við og hótar að segja upp kjarasamningum láglaunafólks. Svo söng Fríkirkjupresturinn í Reykjavík, sem er einn tekjuhæsti prestur landsins, af vandlætingu viðlagið með Viðskiptaráði.



Tekjuhátt fólk man oft ekki nákvæmlega hvaða laun það hefur. Gildir það um forseta Alþýðusambands Íslands? Kjararáð hækkaði nefnilega laun biskups í nánast sömu laun og forseti Alþýðusambandsins hefur fyrir störfin sín og haft um árabil, þó alþingismenn séu enn með um fjórðungi lægri laun en hann. Nú gegnir biskup elsta embætti í sögu þjóðar og alþingismenn setja landinu lög, en líklega vegur það létt í samanburði við ábyrgðina sem hvílir á herðum forseta Alþýðusambands Íslands.



Ef nær er skoðað í vinnumarkað verkalýðsforystunnar, þá eru samkvæmt skattskrám vandfundnir verkalýðsforingjar sem ekki eru með á aðra milljón á mánuði og vekja athygli mörg dæmi um hækkun launa þeirra á milli áranna 2015 og 2016 um 20-45% samkvæmt fréttum fjölmiðla. Ekki varð það til að rústa „sáttinni“ um lægstu laun á vinnumarkaði. Sjálfsagt er að verðskulda með góðum launum ábyrgðarfull störf forystufólks í launþegahreyfingunni sem m.a. felast í að ákveða laun fyrir stjórnendur lífeyrissjóða landsins. Þá kemur ekkert annað til greina en að greiða ofurlaun, sem kjararáð hefur ekki enn treyst sér til að hafa til viðmiðunar í úrskurðum sínum.



Hvenær kemur sá tími að verkalýðsforingjar horfi sér nær og hafi vinnumarkað að viðmiðun, sem þeir þekkja best af eigin reynslu og segi þess vegna upp kjarasamningum láglaunafólks? Í kjaraviðræðum í framhaldinu færi vel á því að fólkið við samningaborðið skiptist á upplýsingum um hvert annars laun og létu svo ráða um niðurstöðu kjarasamnings fyrir láglaunafólkið. Það væri lifandi vinnumarkaður til að taka mark á og miða lægstu launin við.

 



Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og sóknarprestur í Heydölum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×