Tónlist

Tár sást á hvörmum tölvu­leikja­spilara

Starri Freyr Jónsson skrifar
Þorkell Harðarson, varaformaður Lúðrasveitar Svans og klarinettleikari hennar.
Þorkell Harðarson, varaformaður Lúðrasveitar Svans og klarinettleikari hennar. Vísir/Vilhelm
Lúðrasveitin Svanur blæs til tölvuleikjatónleikaveislu í dag laugardag í Norðurljósum í Hörpu. Þar mun sveitin leika fjölda laga úr ýmsum tölvuleikjum auk þess sem sýnd verða áhrifamikil myndskeið úr leikjunum á stóru tjaldi fyrir aftan lúðrasveitina á meðan tónleikarnir standa yfir.

Sveitin hélt samskonar tónleika haustið 2013 sem vöktu mikla lukku og segir Þorkell Harðarson, varaformaður Lúðrasveitar Svans og klarinettleikari hennar, að fjöldi beiðna um aðra tónleika hafi borist þeim á undanförnum fjórum árum.

„Tónleikarnir 2013 spurðust vel út á meðal leikjasamfélagsins og var uppselt. Þeir drógu líka að sér annars konar áhorfendur en mæta venjulega á lúðrasveitartónleika og sáust stundum tár á hvörmum hörðustu spilararanna. Tónleikarnir voru einnig afar ánægjulegir fyrir okkur því það er auðvitað lang skemmtilegast að spila fyrir fullu húsi og einnig fyrir nýja áheyrendur.“



Link og Zelda, Megaman og fleiri klassískar persónur úr heimi tölvuleikja koma við sögu á tónleikunum.

Nettur leiði

Hugmyndina að tónleikunum 2013 má rekja til þess að yngri meðlimir sveitarinnar höfðu þjáðst af nettum leiða á lúðrasveitarklassíkinni og langaði til að brjóta upp hið hefðbundna form tónleika af þessu tagi. „Þetta mætti mismikilli hrifningu eldri kynslóðarinnar sem sem sumir hafa spilað með sveitinni í áratugi. Útkoman var afar góð og þeir sem voru hvað mest á móti því að halda tölvuleikjatónleika voru hvað hrifnastir af útkomunni.“

Á tónleikunum í dag mun sveitin flytja tónlist úr eftirfarandi leikjum: Fallout 4, Undertale, Journey, Megaman, Monkey Island, Ducktales, Portal, Battlefield 1942, Elder Scrolls, Zelda, Super Mario Bros., Halo, Civilization, Kingdom Hearts, Final Fantasy, Myst, Advent Rising og World of Warcraft.

„Hvað sýninguna meðfram tónlistinni varðar er búið að vinna dag og nótt í að framleiða myndskeið úr öllum þessum leikjum sem eiga að fylgja tónlistinni. Það er auðvitað svolítið mál en við höfum gert þetta áður, bæði á tölvuleikjatónleikunum fyrri og síðan vorum við með kvikmyndatónlistarþema fyrir stuttu. Þar rann þetta ljúft í gegn. Kannski göngum við lengra á næstu tölvuleikjatónleikum og verðum í búningum úr leikjunum?“



Kraftmikið hljóðfæri

Lúðrasveitin Svanur er ein elsta hljómsveit landsins, stofnuð árið 1930 og hefur starfað sleitulaust síðan þá. Svanurinn hefur sett brag sinn á bæjarlíf Reykvíkinga með því að koma fram í skrúðgöngum og kröfugöngum í áratugi, ásamt hefðbundnu spilamennskum við styttu Jóns Sigurðssonar á þjóðhátíðardegi Íslendinga.

Síðustu árin hefur sveitin verið í fremstu röð hljómsveita af þessu tagi og sett mikinn metnað í stóra tónleika sína sem eru jafnan tveir á ári.

„Lúðrasveitir eru oft settar í ferköntuð box sökum fyrirfram ákeðinnar myndar sem fólk hefur af þeim. En í raun erum við óræður margflötungur sem hægt er að sveigja í ýmsar óvæntar áttir. Góð lúðrasveit eitt kraftmesta hljóðfæri sem völ er á fyrir tónskáld og skemmtikrafta sem nálgast okkur með opinn huga.“

Tónleikarnir hefjast kl. 14 í dag. Nánari upplýsingar og miðasölu má nálgast á harpa.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×