Lífið

Þau eru systkini: Með hæfileikana í blóðinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þessum systkinum er margt til lista lagt.
Þessum systkinum er margt til lista lagt.
Svo virðist oft sem hæfileikar séu ættgengir, en það sannast sko sannarlega ef litið er yfir þennan lista yfir fræg, íslensk systkini.

Sum þessara systkinapara koma ef til vill á óvart, en öll eiga þau það sameiginlegt að hafa skarað fram úr á hinum ýmsu sviðum.

Emmsjé Gauti og Karin.
Söngelsk systkini

Emmsjé Gauti er landsmönnum kunnugur enda einn fremsti rappari landsins. Systir hans, tónlistarkonan Karin Sveinsdóttir, sem gengur einnig undir listamannsnafninu Young Karin, er ekki síður hæfileikarík.

 

Auður og Hrafnhildur.
Do Re Mí Fa Sund

Hrafnhildur Lúthersdóttir er afrekskona í sundi og hefur sett fjölda meta í greininni, sem og keppt fyrir landslið Íslands í sundi. Hún á ekki langt að sækja metnaðinn og þrautseigjuna því tónlistarmaðurinn Auður, sem heitir réttu nafni Auðunn Lúthersson, er bróðir hennar. Auður kom eins og stormsveipur inní íslenskt tónlistarlíf og hefur náð ótrúlega langt á stuttum tíma.

Björt og Fannar.
Þriggja stiga systkini

Þó þingkonan Björt Ólafsdóttir sé ung að árum, hefur hún náð langt í lífinu og hefur gegnt stöðu umhverfis- og auðlindaráðherra síðan snemma á þessu ári. Björt lætur sko ekki vaða yfir sig og það gerir bróðir hennar, körfuboltakappinn Fannar Ólafsson, ekki heldur. Einstaklega góð systkinablanda á þeim bænum.

Jóhannes og Halla.
Eftirherman og alþingiskonan

Halla Signý Kristjánsdóttir er ein af splunkunýju þingmönnunum á Alþingi en hún stendur vaktina í Norðvesturkjördæmi fyrir Framsóknarflokkinn. Bróðir hennar er enginn annar en Jóhannes Kristjánsson, ein ástsælasta eftirherma þjóðarinnar sem hefur eflaust hermt eftir flestum þingmönnum landsins. Ætli Halla sé næst?

Óskar og Steinunn.
Stöngin inn

Fjölmiðlamaðurinn og knattspyrnusérfræðingurinn Óskar Hrafn Þorvaldsson og sjónvarpsstjarnan og pólitíkusinn Steinunn Ása Þorvaldsdóttir eru systkini. Þeir sem þau þekkja vita að þau bera af sér gríðarlega góðan þokka og eru skelegg með eindæmum.

Magnús Geir, Árni Oddur og Jón Gunnar.
Þrusu þrenna

Hvað eiga Magnús Geir útvarpsstjóri, Árni Oddur forstjóri Marel og leikstjórinn Jón Gunnar sameiginlegt? Jú, þeir eru allir Þórðarsynir og tengdir bræðraböndum. Þeir virðast hafa dottið í genalukkupottinn þegar kemur að hæfileikum og skara fram úr, hver á sínu sviði.

Ilmur og Lísa.
Á öndverðu meiði

Ástsæla leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir er varaborgarfulltrúi í Reykjavík fyrir Bjarta framtíð. Systir hennar, Lísa Kristjánsdóttir, er hins vegar aðstoðarkona Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs. Eflaust líflegar pólitískar umræður í þeirra fjölskylduboðum.

Katla, Sveinn Andri og Herdís.
Leiklist og lagamál

Leikkonan Katla Margrét Þorgeirsdóttir kann listina að kitla hláturtaugar landans betur en flestir. Það ætti að gleðja systkini hennar, lögfræðingana Svein Andra Sveinsson og Herdísi Þorgeirsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×