Innlent

Vill mynda ríkisstjórn með breiða skírskotun til hægri og vinstri

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Sigurður Ingi á Bessastöðum í dag.
Sigurður Ingi á Bessastöðum í dag. Vísir/Ernir
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segist spenntari fyrir því að taka þátt í ríkisstjórn með breiða skírskotun á bæði hægri og vinstri væng stjórnmálanna. Hann segir það hugnast honum betur en vinstri-miðjustjórn líkt og Katrín Jakobsdóttir virðist hafa í huga.

Hann segir að slíkur meirihluti fráfarandi stjórnarandstöðuflokkanna væri með mjög tæpan meirihluta, eða 32 þingmenn, og því væri erfitt að verja hana falli. Bæði væri möguleiki að bæta við fleiri flokkum í ríkisstjórnina sem Katrín sér fyrir sér eða að leita lengra til hægri og vinstri.

„Það er auðvitað tilgangur svona fundar að fara yfir stöðuna hvaða möguleikar séu uppi á borði til að mynda starfhæfa ríkisstjórn, ég held að það hafi nú aldrei verið mikilvægara en núna að menn vandi sig við það,“ sagði Sigurður Ingi í samtali við fjölmiðla að loknum fundi sínum með forsetanum.

„Það hefur verið afstaða mín og Framsóknarmanna að til að skapa stöðugleika þá þarf breiða ríkisstjórn og ég hef talað fyrir því og rætt það við forsetann en það er líka okkar verksvið að að mynd starfhæfa ríkisstjórn.“

Ertu líka að horfa til hægri og mögulegs samstarfs með Sjálfstæðisflokknum?

„Ég er fyrst og fremst að horfa til þess að búa til ríkisstjórn með breiða skírskotun í báðar áttir. Ég held að það sé það sem þarf.“

„Framsókn er miðjuflokkur. Hann kann að vinna bæði til hægri og vinstri og leiða saman ólíka aðila.“

 

Sigurður Ingi var þriðji stjórnmálaleiðtoginn á fund forseta í dag.Vísir/Ernir
Ekki rætt við Sigmund Davíð

Hann segir það vera mat flokksins að ríkisstjórn bæði til hægri og vinstri yrði vænlegri til að skapa pólitískan stöðugleika. Þá tekur hann undir orð Bjarna Benediktssonar og Katrínar Jakobsdóttur um að vænlegt væri að fá svigrúm til að ræða óformlega við formenn annarra flokka áður en einhver einn fær umboð til stjórnarmyndunar.

„Ég hef ekki rætt við alla formenn, ég hef rætt við suma,“ segir Sigurður Ingi.

Hefur þú rætt við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins í þessu samhengi?

„Ekki um stjórnarmyndun, nei.“

Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá blaðamannafund Sigurðar Inga í heild sinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×