Glamour

Glamúr og næturlíf í haustherferð H&M

Ritstjórn skrifar
Myndir: H&M
Myndir: H&M
Haustherferð H&M 2017 hefur litið dagsins ljós, en ofurfyrirsætan Naomi Campbell er þar aðalmálið. Mikið er um glamúr í línunni, skarpa jakka og kvenleika. Skínandi silfur, prjónapeysur og kokteilkjólar eru meðal annars það sem línan hefur upp á að bjóða.

Í herferðarmyndbandi línunnar tekur Naomi Campbell okkur á næturlífið í Tókýó, þar sem aðrar ofurfyrirsætur koma líka fyrir. 

„Tókýó er klárlega ein af mínum uppáhalds borgum. Í tökunum klæddist ég dökkri tvíhnepptri buxnadragt sem er án efa ein af mínum uppáhalds flíkum úr haustlínunni. Ég myndi sjálf klæðast dragtinni á svipaðan hátt og ég var í myndbandinu, alveg hneppt upp en samt sést í smá húð svo það myndast skemmtilegt jafnvægi af kvenlega og karlæga stílnum,“ segir Naomi Campell um línuna.

Línan kemur í búðir þann 21. september næstkomandi, og er án efa hægt að finna sér margt fallegt fyrir veturinn.






×