Innlent

Lilja Alfreðs og Framsókn slá í gegn meðal bókafólks

Jakob Bjarnar skrifar
Menningargeirinn í skýjunum með fyrirhugað frumvarp Lilju um afnám virðisaukaskatts á bækur.
Menningargeirinn í skýjunum með fyrirhugað frumvarp Lilju um afnám virðisaukaskatts á bækur.
Fólk í menningargeiranum keppist nú við að lofa og prísa og læka Lilju Alfreðsdóttur Framsóknarflokki sem í gær greindi frá því að hún vilji leggja fram frumvarp þar sem kveðið verður á um að virðisaukaskattur á bækur verði aflagður.

„Það var frábært að sjá og heyra í gærkvöldi þegar Lilja D. Alfredsdottir sagði frá væntanlegu frumvarpi um afnám virðisaukaskatts á bækur,“ segir Egill Örn Jóhannsson formaður Félags íslenskra bókaútgefanda, kátur á Facebooksíðu sinni nú fyrir stundu.

Eins og sjá má hefur Lilja uppi hástemmd orð um mikilvægi bókmenningar. Egill Örn hefur margoft áður bent á að staða íslenskrar bókaútgáfu sé grafalvarleg, meðal annars vegna virðisaukaskattsins, en segir að þeir sem þar starfi hafi til þessa „alltof oft talað fyrir daufum eyrum stjórnmálamanna.“ En, hann vonast til þess að frumvarp Lilju falli í kramið í þinginu.

Mikill fögnuður braust út á Facebook í gærkvöldi í kjölfar þessara yfirlýsinga Lilju. Og líkast til á Framsóknarflokkurinn ekki svo góðu veðri að venjast úr menningargeiranum.

Stjórnmálamenn úr öðrum flokkum, vildu gjarnan þessa Lilju kveðið hafa, svo sem Logi Einarsson formaður Samfylkingar sem lýsti sig þessu sammála og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, segir á síðu Egils Arnar: „Ég hefði átt að lauma þeim drögum að slíku frumvarpi sem ég er að vinna að til hennar. Líklega skynsamlegt að við ræðum saman.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×