Innlent

Einar Bárðar: Hætturnar alltaf til staðar og því erfitt að fyrirbyggja slys sem þessi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Einar segist miður sín yfir slysinu, og ætlar að gera allt til að koma í veg fyrir að slys sem þessi endurtaki sig.
Einar segist miður sín yfir slysinu, og ætlar að gera allt til að koma í veg fyrir að slys sem þessi endurtaki sig. vísir
„Maður getur ekki fyrirbyggt slys. En það sem maður getur gert er að undirbúa teymið í kringum sig þannig að viðbrögðin verði, eins og í þessu tilfelli, ævintýralega snögg.“

Þetta segir Einar Bárðarson, eigandi hjólreiðakeppninnar Kia-gullhringsins sem fór fram um síðastliðna helgi. Að minnsta kosti fimm slösuðust í keppninni eftir að dekk eins hjólsins fór ofan í rauf á kindahliði. Einn var í fyrstu talinn alvarlega slasaður en verður útskrifaður af sjúkrahúsi í dag.

Gripið til allra öryggisráðstafana

Einar segir að gripið hafi verið til allra tiltækra öryggisráðstafana fyrir keppni. Hins vegar leynist hætturnar víða á opnum þjóðvegi á Íslandi, en að farið verði enn betur yfir öryggismál fyrir næstu keppni.

„Þetta er 106 kílómetra leið. Það er verið að keppa á opnum þjóðvegi með umverð og við tökum það fram þegar fólk skráir sig á mótið að það sé með þessum hætti. En við munum að sjálfsögðu reyna að gera betur næst og reyna að koma í veg fyrir svona hluti,“ segir hann.

Þá hafi viðbragðsaðilar allir verið til taks allan tímann. „Við erum með lækni á svæðinu. Við erum með björgunarsveitarbíl, fengum sjúkraflutninga og lögregluna í Árnessýslu til þess að vera með bíl á Laugarvatni sem gerði það að verkum að á innan við tíu mínútum var nánast allt tiltækt björgunarlið komið.“

Síðustu dagar þeir erfiðustu

Einar ítrekar að farið hafi verið í ítarlega brautarskoðun fyrir mót. Reyndustu hjólreiðamennirnir hafi sömuleiðis skoðað brautina sjálfir, en þessi sami hringur hefur verið hjólaður fimm sinnum áður. Þá hafi fólk verið meðvitað um að það þyrfti að fara varlega yfir ristarhliðin.

„Það er hrikalega erfitt að vita til þess að fólk hafi slasast i þessari keppni. Þetta er mikið áfall fyrir okkur sem höfum verið að standa í henni og erum öll að reyna að vinna úr þessu, og munum að sjálfsögðu leita allra leiða til að koma í veg fyrir svona. En þetta er slys, fyrst og fremst. Aðstæður eru ýmis konar; það eru holur í vegum víða, laust sauðfé á beit í köntum og alls konar hættur,“ segir hann og bætir við að hann sé miður sín yfir atvikinu.

„Síðustu tveir sólarhringar hafa verið með þeim erfiðari sem ég hef gengið í gegnum. En núna förum við í að endurskoða hlutina og ákveða næstu skref.“


Tengdar fréttir

Hjólreiðaslysið rakið til kindahliðs

Eigandi hjólareiðakeppninnar KIA-Gullhringsins segir að verið sé að skoða hvort keppnishaldarar hefðu geta gert eitthvað til að koma í veg fyrir hjólreiðarslys sem var í gærkvöldi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×