Matur

Í eld­húsi Evu: Steikar taco með mangósalsa og lár­peru­sósu

Eva Laufey skrifar
Steikar taco með mangósalsa og lárperusósu.
Steikar taco með mangósalsa og lárperusósu.

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að steikar taco.

Steikar taco

400 g nautasteik, t.d. sirloin-steik

Ólífuolía

1 msk. steinselja

¼ rautt chili

Hvítlauksrif

Salt og pipar



Saxið niður steinselju, chili og hvítlauk. Blandið saman við ólífuolíu og nuddið steikinni upp úr marineringunni, kryddið einnig með salti og pipar.

Hitið grillpönnu og setjið kjötið á þegar pannan er orðin mjög heit, steikið í um það bil fimm til sex mínútur á hvorri hið. Það fer auðvitað eftir þykktinni á kjötinu og smekk hvers og eins.

Kjötið þarf að hvíla í lágmark sex mínútur þegar það er tilbúið. Á meðan undirbúið þið meðlætið.

Þegar kjötið er búið að hvílast þá er gott að skera það í þunnar sneiðar og bera fram með tortillavefjum, hreinum fetaosti, mangó­salsa og ljúffengri lárperusósu.



Mangósalsa

1 mangó

10 kirsuberjatómatar

½ laukur

1 msk. smátt söxuð steinselja

Ólífuolía

Salt og pipar

Safi úr hálfri límónu (lime)



Skerið hráefnið smátt og blandið saman í skál, hellið smá ólífuolíu saman við og kryddið til með salti og pipar. Rétt áður en þið berið salatið fram þá kreistið þið vel af límónusafa yfir.



Lárperusósa

4 dl grískt jógúrt

1 lárpera

1 msk. smátt saxaður kóríander

1 tsk. hunang

Safi úr hálfri límónu (lime)

Salt og pipar



Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið þar til sósan er orðin silkimjúk. Berið strax fram og njótið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×