Innlent

3,8 milljarða á­hrif skatta­lækkana „al­gjör lág­marks­á­hrif í stóra sam­henginu“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Katrín Jakobsdóttir ræddu tekjuöflun ríkisins á þingi í dag.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Katrín Jakobsdóttir ræddu tekjuöflun ríkisins á þingi í dag. visir/anton brink
Heildaráhrif þeirra lækkuna á tekjuskatti einstaklinga sem taka gildi um áramótin eru 3,8 milljarðar. Þetta kom fram í máli Bjarna Benediktssonar, fjármála-og efnahagsráðherra, umræðu um fjárlagafrumvarp á Alþingi í dag. Sagði Bjarni að þessir 3,8 milljarðar væru „algjör lágmarksáhrif í stóra samhenginu“ þar sem heildartekjur ríkisins væru 770 milljarðar.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, veitti Bjarna andsvar eftir framsöguræðu hans og spurði ráðherrann hvort það hefði ekki verið skynsamlegt að fresta gildistöku skattlækkananna þar sem uppsöfnuð fjárfestingaþörf væri mikil, eins og fjármálaráðherra hafði einmitt komið inn á í framsöguræðu sinni.

Mikil uppsöfnuð þörf fyrir framkvæmdir í vegakerfinu

Nefndi Katrín meðal annars ófjármagnaða samgönguáætlun sem Alþingi samþykkti skömmu fyrir kosningarnar í október en samkvæmt fjárlagafrumvarpinu vantar 15 milljarða upp á til að hún sé fullfjármögnuð.

„Ástæða þess að hún var samþykkt var ekki sú að það væru kosningar framundan heldur vitum við að það er mjög uppsöfnuð þörf fyrir framkvæmdir í vegakerfinu, ekki bara vegna niðurskurðar síðustu ára heldur einnig vegna fjölgunar ferðamanna og aukins álags á vegakerfið. Það þarf að afla tekna fyrir þessum framkvæmdum og ég spyr því ráðherrann hvernig hann sér fyrir sér að þingið muni nálgast þetta verkefni,“ sagði Katrín.

Ekki hægt að gera allt í einu

Bjarni minnti á að í fjárlagafrumvarpinu væru ýmis krónutölugjöld hækkuð umfram verðlag og í því væri fólgin ákveðin mótvægisaðgerð. Ráðherrann sagði mjög auðvelt að koma upp í pontu á þingi og benda á að meiri fjármuni vantaði í ýmis verkefni.

„En við þurfum að kunna okkur magamál í útgjöldum. Við getum ekki gert allt í einu. Við erum nýbúin að stórhækka laun. [...] Við ætlum að byggja nýjan Landspítala. Við erum að forgangsraða fjármunum í laun á sama tíma og við erum að auka framlög til menntakerfisins og heilbrigðiskerfisins og má ég minna á það að við höfum aukið framlög til almannatrygginga um 20 milljarða á 12 mánuðum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×