Viðskipti innlent

Kornrækt til brauð- og ölgerðar eykst með nýrri þurrkunarstöð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sérhæfð kornþurrkunarstöð hefur verið tekin í notkun á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Með henni eykst matvælaöryggi í kornbúskap en íslenskt bygg nýtist í vaxandi mæli til brauð- og ölgerðar. Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Ólaf Eggertsson bónda. 

Sjaldan hefur árað jafn vel til kornræktar sunnanlands. Undir Eyjafjöllum hófst kornskurður að þessu sinni tveimur til þremur vikum fyrr en oft áður.

Vagga kornræktar á Íslandi hefur verið á Þorvaldseyri í rúma hálfa öld. Þar er nú risin sérhæfð bygging sem sýnir að þarna líta menn á kornrækt sem alvörubúskap. Þetta er kornþurrkunarstöð.

Eftir að korninu hefur verið sturtað í stöðina fer það sjálfvirkt inn á þurrkarana og síðan inn á lager.Stöð 2/Einar Árnason.
„Þetta er sérhæfð stöð fyrst og fremst til að fullþurrka kornið svo það geymist örugglega yfir langan tíma,“ segir Ólafur. 

Hann áætlar að uppskeran í ár verði um 200 tonn og að um helmingur fari til manneldis. Verksmiðjan getur þurrkað um eitt tonn á klukkustund. 

„Þetta er mjög hagkvæmt og gott vinnuumhverfi þar sem kornið fer sjálfvirkt inn á þurrkarana og sjálfvirkt út úr þeim og síðan beint inn á lagerana.“ 

Upphaflega var kornræktin fyrst og fremst hugsuð fyrir kýrnar.

Á Þorvaldseyri hefur kornrækt verið stunduð samfellt frá árinu 1960.Stöð 2/Einar Árnason.
„Þegar við byrjuðum á þessu var þetta náttúrlega eingöngu hliðarbúgrein við búskapinn til að skaffa kúnum okkar kjarnfóður. Og það er reyndar í gangi ennþá. En nú erum við farnir að auka við kornræktina með tilkomu þessarar stöðvar og getum meðhöndlað hér korn til manneldis sem uppfyllir alla staðla og allar kröfur um matvælaöryggi.“ 

Ólafur segir vaxandi áhuga á því að nota íslenskt bygg til brauðgerðar og nú séu ölgerðarmenn farnir að sækja í kornið.  

„Brugghús eru að skaffa 100% íslenska bjóra og það er miklu meiri áhugi á því. Og við getum hérna skaffað korn af fullum gæðum fyrir þessa framleiðslu,“ segir bóndinn á Þorvaldseyri.

Íslenskt bygg nýtist bæði til brauð- og ölgerðar. Myndin er frá akrinum á Þorvaldseyri.Stöð 2/Einar Árnason.

Tengdar fréttir

Fjölskyldan á Þorvaldseyri gerir hlé á búskap um óákveðinn tíma

Byggðin undir Eyjafjöllum varð fyrir miklu áfalli í dag þegar oddviti héraðsins, bóndinn á Þorvaldseyri, játaði sig sigraðan gagnvart náttúruöflunum og lýsti því yfir að hlé yrði á búskap um óákveðinn tíma á þessu eina glæsilegasta býli landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×