Bíó og sjónvarp

Herþyrlur, skriðdreki og hraðskreiðir bílar á Akranesi við tökur á Fast 8

Birgir Olgeirsson skrifar
Það var heldur betur líf og fjör á Akranesi í dag þar sem tökur fóru fram á bandarísku stórmyndinni Fast 8. Sjá mátti þyrlur sveima yfir Faxabraut á meðan kraftbíl var ekið eftir henni og fengu Skagamenn að sjá skriðdreka ekið eftir götum bæjarins ásamt glæsilegum sportbílum. 

Áætlað er að tökum verði framhaldið áfram á Akranesi á morgun. Fyrir tveimur dögum lauk tökuteymi Fast 8 tökum við Mývatn sem höfðu staðið yfir frá því í byrjun mars. Mætti meðal annars leikarinn Tyrese Gibson til landsins til að fara með hlutverk Romans við tökur á myndinni við Mývatn.

Sjá einnig: Tyrese Gibson orðlaus yfir náttúrufegurð Íslands

Engir af aðalleikurum myndarinnar eru staddir á Akranesi á meðan tökur fara þar fram. 

Áætlað er að á fjórða hundruð manns komi að framleiðslu myndarinnar hér á landi en áætlaður kostnaður er um 2,6 milljarðar króna og mun því endurgreiðsla úr ríkissjóði nema um 520 milljónum króna.

Á meðan tökum stóð á Akranesi lögðu fjölmargir leið sína nærri hafnarsvæðinu í þeirri von um að verða vitni að einhverjum hasar. Varð þeim að ósk sinni en björgunarsveitarmenn gættu þess að vegfarendur færu ekki of nærri.

Þegar reynt var að ná tali af einhverjum sem koma nálægt þessu verkefni báru þeir fyrir sig samkomulag sem þeir undirrituðu við bandaríska kvikmyndaverið Universal sem kveður á um að þeir megi ekki ræða á nokkurn hátt um verkefnið.

Myndum hefur þó verið streymt inn á samfélagsmiðlana sem gefa til kynna hve umfangið er mikið. Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá myndskeið frá tökustað í dag. 

Og fleiri myndir hér. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×