Erlent

Fyrr­verandi for­seti Fíla­beins­strandarinnar neitar sök

Atli ísleifsson skrifar
Réttarhöld yfir Gbagbo hófust í Haag í morgun.
Réttarhöld yfir Gbagbo hófust í Haag í morgun. Vísir/EPA
Laurent Gbagbo, fyrrverandi forseti Fílabeinsstrandarinnar, hefur hafnað ásökunum um að hafa gerst sekur um stríðsglæpi og glæpum gegn mannkyni. Réttarhöld yfir hófust í Alþjóðaglæpadómstólnum í Haag í morgun.

Ákærur snúa að atburðum sem áttu sér stað í borgarastríðinu í landinu sem blossuðu upp eftir að Gbagbo beið lægri hlut í kosningum árið 2010. Neitaði hinn sjötugi Gbagbo að stíga til hliðar eftir að Alassane Ouattara hafði haft betur gegn honum.

Borgarastríðið stóð í rúma fimm mánuði þar sem um þrjú þúsund manns féllu. Gbagbo hélt kyrru fyrir í forsetahöllinni á meðan á borgarastríðinu stóð.

Í frétt BBC kemur fram að uppreisnarforinginn Charles Ble Goude sé einnig ákærður í málinu, en hann hefur sömuleiðis neitað sök.

Búist er við að réttarhöldin muni standa í þrjú eða fjögur ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×