Innlent

Stjórnar­skrár­til­lögurnar verða ekki tilbúnar áður en þingið kemur saman

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Tillögur fulltrúa meirihlutans ekki komnar fram.
Tillögur fulltrúa meirihlutans ekki komnar fram. Vísir/Ernir
Stjórnarskrárnefnd mun ekki klára tillögur sínar áður en að þing kemur saman á morgun. Það hafði þó verið markmiðið en nú er ljóst að svo verður ekki. Þingið kemur saman eftir jólafrí á morgun. 

Páll Þórhallsson er formaður stjórnarskrárnefndar.Vísir/Anton
Eins og Vísir greindi frá fyrir helgi stóð til að fulltrúar stjórnarmeirihlutans í nefndinni myndu skila fastmótuðum tillögum að breytingum um þau ákvæði sem enn var tekist á um á síðasta fundi nefndarinnar. Þær tillögur liggja ekki fyrir.

Páll Þórhallsson, formaður stjórnarskrárnefndarinnar, sem starfar í umboði forsætisráðherra, sagði fyrir helgi að þó að tillögurnar yrðu ekki fullkláraðar fyrir morgundaginn myndi hann gefa ráðherranum, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, skýrslu um stöðuna.

Páll sagði hjálplegt að hafa haft ákveðinn dag til viðmiðunar til að klára starf nefndarinnar en að í svona stóru máli hengi enginn sig á einn dag.

Samkvæmt heimildum Vísis er það einna helst eitt mál sem út af stendur í vinnu nefndarinnar; heimild kjósenda til að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögur. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×