Glamour

Bein útsending: Tískusýning Geysis í Iðnó

Ritstjórn skrifar
Vertu á fremsta bekk með Glamour!

Íslenska fatamerkið Geysir frumsýnir glænýja haust - og vetrarlínu sína með pompi og pragt í Iðnó í kvöld en þetta er í fyrsta sinn sýning Geysis af þessu tagi. Sýningi verður í beinni hér á Glamour og hefst stundvíslega klukkan 20.30. 

Fatalínan verður svo komin í sölu í verslunum Geysis strax á morgun, laugardaginn 17. september. 

Yfirhönnuður Geysis er Erna Einarsdóttir er eitt helsta sérkenni líunnar er íslenska ullin. Erna nam við Gerrit Rietveld Akademíuna í Amsterdam og Central Saint Martins í London. Hún sneri aftur til Íslands og hóf störf hjá Geysi árið 2013 eftir stutt stopp í París hjá Saint Laurent þar sem hún starfaði undir Hedi Slimane. Vetrarfatalínan 2016 er önnur fatalína hennar fyrir Geysi.

Fatnaðurinn er innblásinn af íslensku konunni og hennar daglega lífi í borginni, með sterkum skírskotunum í íslenska prjónahefð. Geysir hefur alla tíð lagt áherslu á gæði og með nýju fatalínunni blandast hágæðaefni líkt og móher, silki, alpaca og hör fallega innan um íslensku ullina. Á sama tíma og Erna leitar í íslenska fatahefð er fatnaðurinn hannaður með nútíma konu í huga.

Watch live video from geysir_2016 on www.twitch.tv





×