Innlent

Samtökin ´78 skora á innanríkisráðherra að beita sér í máli Martin

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Andri Marinó
Samtökin ´78 harma niðurstöðu Hæstaréttar í máli samkynhneigðs hælisleitanda frá Nígeríu en dómur féll í máli hans þann fyrsta þessa mánaðar þar sem því er neitað að taka eigi umsókn hans um hæli til meðferðar. Samtökin sendu frá sér ályktun í dag þar sem niðurstöðunni er mótmælt harðlega.

Auður Magndís Auðardóttir segir í samtali við Vísi niðurstöðuna sérstaklega skjóta skökku við þar sem innanríkisráðherra hefur sagt það ótækt að senda fólk til Ítalíu. Á Alþingi 17. september síðastliðinn sagði Ólöf Nordal orðrétt: „Grikkland er ekki talið öruggt land. Það á einnig við um Ítalíu og Ungverjaland, þau eru til viðbótar ekki talin örugg lönd. Það er ekki óhætt að senda fólk til baka þangað."

Maðurinn sem um ræðir heitir Martin Omulu og hefur hann dvalið hér á landi í þrjú ár og þrjá mánuði. „Depurð er ekki orð sem ég get notað til að lýsa því hvernig mér líður. Það er eins og lífið sé að fjara undan mér, ég er að missa það,“ sagði í samtali við Fréttablaðið

Niðurstaða dómsins merkir að manninum veðrur vísað úr landi og hann sendur aftur til Ítalíu. „Í dómsorði segir að áfrýjaður dómur sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. febrúar sl. skuli standa óraskaður, sem þýðir að maðurinn verði sendur aftur til Ítalíu, þaðan sem hann kom til Íslands. Samtökin ´78 harma þessa niðurstöðu íslensks réttarkerfis sem felur í sér að Íslendingar gætu borið ábyrgð á því að maðurinn verði að lokum sendur aftur til Nígeríu, þar sem löng fangelsisvist og jafnvel dauðarefsing liggur við samkynhneigð. Hinsegin fólk sætir að auki ýmiskonar ofsóknum í landinu, líkt og maðurinn sjálfur hefur upplifað.“

Samtökin ´78 skora því á innanríkisráðherra að „standa við fyrri orð og beita sér fyrir því að viðkomandi hælisleitandi verði ekki sendur aftur til Ítalíu, frekar en aðrir.“


Tengdar fréttir

Hælisleitandi grét í Hæstarétti

Martin Omolu hefur verið á flótta vegna samkynhneigðar sinnar í meira en áratug. Hæstiréttur vísaði máli hans frá á fimmtudag og vísar honum til Ítalíu. Þaðan óttast hann að verða sendur aftur til Nígeríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×