Íslenski boltinn

Jonathan Glenn: Með sköflunga úr stáli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jonathan Glenn í Blikagallanum í kvöld.
Jonathan Glenn í Blikagallanum í kvöld. vísir/stefán
Þegar Jonathan Glenn kom inn á sem varamaður í lið Breiðabliks sem gerði markalaust jafntefli við KR í kvöld hafði hann afrekað að spila fyrir tvö lið í einni og sömu umferðinni í Pepsi-deild karla.

Glenn var lánaður til Breiðabliks eftir að hafa komið inn á sem varamaður með ÍBV gegn Stjörnunni nokkrum klukkustundum fyrr. Hann fékk svo leikheimild í dag og var með nýja liðinu sínu gegn KR í kvöld.

Sjá einnig:Dómarinn á sjúkrahús með heilahristing | Sjáðu af hverju

„Þetta var nokkuð sérstök helgi hjá mér. Ég átti ekki von á því að fá leikheimild strax með Breiðabliki en þetta gekk upp á endanum. Það er hálfgerð bilun að spila tvo leiki í sömu umferðinni,“ sagði Glenn sem er ánægður með vistaskiptin.

„Breiðablik er metnaðarfullt félag sem ætlar sér stóra hluti. Ég vil taka þátt í því. Ég er þakklátur fyrir tíma minn hjá ÍBV og öllu því góða fólki sem ég kynntist þar. En mér fannst tímabært að breyta til.“

Hann kveðst ekki hafa áhyggjur af því að fá færri mínútur hjá ÍBV eftir að félagið fékk Gunnar Heiðar Þorvaldsson heim.

„Ég vildi sjá hvort að eitthvað myndi ganga upp hjá mér í glugganum og svo kom það í ljós að Breiðablik vildi fá mig. Ég held að það hafi verið gott fyrir alla aðila.“

Hann segir að bæði lið fengu tækifæri til að tryggja sér sigurinn í kvöld en að líklega hafi jafntefli verið sanngjörn niðurstaða. Glenn fékk þó eitt allra besta færi leiksins þegar hann komst inn í slæma sendingu Skúla Jóns Friðgeirssonar á samherja.

„Við hefðum gjarnan viljað vinna. Ég fékk gott færi eftir að komist inn í slæma sendingu. En ég var óheppinn, snertingin sveik mig og markvörðurinn þeirra var mjög fljótur út.“

Það þurfti að huga að Stefáni Loga Magnússyni, markverði KR, í nokkra stund eftir samstuðið en Glenn fékk líka högg á sköflunginn sem skrámaðist.

„Það hafði ekki ekkert að segja. Þeir eru gerðir úr stáli,“ sagði hann og hló dátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×