Lífið

Heimildamynd um Óla Stef: Þroskasaga þjóðhetju

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Óli Prik: Þroskasaga þjóðhetju kemur í kvikmyndahús 6. febrúar.
Óli Prik: Þroskasaga þjóðhetju kemur í kvikmyndahús 6. febrúar.
Heimildarmynd um handknattleikshetjuna Ólaf Setfánsson verður frumsýnd í febrúar

Myndin fjallar um þann tíma þegar Ólafur flytur heim til Íslands, eftir að hafa verið 17 ár í atvinnumennsku.

Titill myndarinnar er Óli Prik og er undirtitillinn Þroskasaga þjóðhetju. Myndin verður í leikstjórn Árna Sveinssonar sem gerði meðal annars Í skóm drekans, Með hangandi hendi og Backyard. Árni fylgdi Óla eftir eins og skugginn í eitt og hálft ár. Og varð „vitni að sigrum og ósigrum í lífi hans og starfi," eins og segir í fréttatilkynningu.

Grímar Jónsson framleiðir myndina fyrir hönd Netop films.

Hér að neðan má sjá fréttatilkynningu frá aðstandendum myndarinnar.

Ólafur hélt eftirminnilega ræðu á Austurvelli í haust.Mynd/Stilla úr Óli Prik
„Óli Prik er persónuleg heimildarmynd um handboltamanninn Ólaf Stefánsson og þau tímamót þegar hann snýr aftur heim eftir 17 ár í atvinnumennsku og tekur að sér að þjálfa meistaraflokk Vals.

Ólafur Stefánsson er lifandi goðsögn í handboltaheiminum og það ríkir mikil eftirvænting þegar hann snýr aftur til gamla uppeldisfélagsins, en Óla er margt til lista lagt annað en að spila handbolta og ferðalagið tekur óvænta stefnu. Óli Prik er þroskasaga þjóðhetju.

Árni Sveinsson leikstýrir, en meðal fyrri mynda hans eru Í skóm drekans, Með hangandi hendi og Backyard. Árni fylgdi Óla eins og skugginn í eitt og hálft ár og varð vitni að sigrum og ósigrum í lífi hans og starfi.

Hér má sjá aðra stillu úr myndinni.Mynd/Óli Prik
Grímar Jónsson framleiðir fyrir hönd Netop Films. Hann hefur nýlokið tökum á kvikmyndinni Hrútum í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, en hann hefur áður framleitt m.a. myndirnar Rafmögnuð Reykjavík, Smáfuglar og Brim.

Tónlist í myndinni er í höndum strákanna í Mono Town sem slógu rækilega í gegn með sinni fyrstu breiðskífu In the eye of the storm á síðasta ári.

Áhugasömum er bent á Facebook síðu myndarinnar www.facebook.com/oliprikfilm en þar verður hægt að sjá brot úr myndinni ásamt efni sem ekki er að finna í endanlegri útgáfu hennar.“

Óli Prik - Beita nr. 1 from Netop Films on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×