Tíu mánaða fangelsi: Braut gegn 14 ára stúlku í miðbæ Akureyrar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. janúar 2015 12:30 Brotin áttu sér stað við Strandgötu 7-13 í miðbæ Akureyrar. Vísir/Auðunn
Tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Maðurinn var á nítjánda ári þegar brotin áttu sér stað í miðbæ Akureyrar. Var hann dæmdur fyrir að hafa gegn vilja stúlkunnar káfað á henni innanklæða, bæði á kynfærum og brjóstum. Hins vegar þótti ekki sannað að maðurinn hefði klórað og sett fingur í leggöng stúlkunnar eins og hún hélt fram. Ákærði og stúlkan þekktust lítið sem ekkert en höfðu verið í samskiptum á Facebook aðfaranótt 21. október. Stúlkan gisti umrædda nótt hjá vinkonu sinni en þáði boð mannsins um að fara í bíltúr ásamt fleirum. Sátu þau hlið við hlið og reyndi maðurinn að kyssa hana. Stutt stopp var gert við heimili mannsins og bauð hann henni að fylgja sér inn. Stúlkan neitaði hins vegar boðinu. Sagðist hún þurfa að hitta systur sína í miðbænum. Yfirgáfu þau bifreiðina við Strandgötu og bauðst dæmdi til að bíða með henni. Sagði stúlkan að skömmu síðar hefði hann dregið sig á bakvið einhvern skúr. Myrkur hafi verið en hún hafi þó séð til fólks. Hins vegar hafi hún ekki þorað að kalla eftir aðstoð af ótta við að maðurinn myndi ráðast á sig.Héraðsdómur Norðurlands eystra á Akureyri.Vísir/PjeturSitur inni í tvo mánuði Dómurinn taldi frásögn stúlkunnar trúverðuga á meðan framburður ákærða var reikull. Hins vegar þótti ekki sannað að ákærði hefði verið meðvitaður um að stúlkan væri yngri en 15 ára. Því var ekki dæmt eftir 1. málsgrein 202 greinar hegningarlaga sem snýr að samræði eða kynferðismökum við börn yngri en 15 ára. Stúlkan var 14 ára og þriggja mánaða þegar brotið átti sér stað en ákærði var 18 ára og sex mánaða. Þá fann dómurinn að því að stúlkan hefði ekki verið látin bera vitni fyrir dómi. „Verður ákæruvaldið að bera halla af þeirri ráðstöfun sinni við sönnunarfærslu,“ segir í dómnum. Þótti ljóst að maðurinn hefði brotið á stúlkunni, káfað innanklæða á kynfærum og brjóstum hennar, en þar sem ekki lágu fyrir sérfræðigögn á borð við áverkavottorð þótti ekki sannað að maðurinn hefði klórað og sett fingur í leggöng stúlkunnar. „Þar sem frásögn hennar þykir ekki alveg skýr um þessi atriði og ekki var tekin skýrsla af henni við aðalmeðferð málsins er það niðurstaða dómsins að sýkna beri ákærða af þessum verknaði.“ Maðurinn hafði áður hlotið dóma fyrir brot gegn valdstjórninni og fíkniefnabrot. Hins vegar var litið til þess að hann var ungur að árum er brotið var framið. Þótti því tíu mánaða fangelsi hæfilegur dómur en þar af eru átta skilorðsbundnir. Krafist var einnar milljónar króna í miskabætur en fallist var á 600 þúsund krónur í bætur.Dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Fleiri fréttir Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Sjá meira