Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra færa viðbúnaðarstig almannavarna vegna jarðhræringa í Bárðarbungu af hættustigi niður á óvissustig. Óvissustig almannavarna þýðir að eftirlit er haft með atburðarrás sem gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.
Ákvörðunin er tekin í samræmi við hættumat Veðurstofu Íslands og mælingar sem sýna að dregið hefur töluvert úr skjálftavirkni og GPS færslum. Enn er þó aukin jarðhitavirkni í Bárðarbungu sem getur leitt til söfnunar á bræðsluvatni og minni jökulhlaupum í Jökulsá á Fjöllum. Nýlegar mælingar sýna að gasmengun á svæðinu í og við Holuhraun er almennt undir hættumörkum. Lokun lögreglu á svæðinu er aflétt.
Þær stofnanir sem fylgst hafa með svæðinu munu fram á haust sinna sérstöku eftirliti með því. Vatnajökulsþjóðgarður hefur umsjón með svæðinu og stefnir að því að veita aðgang að hrauninu eftir merktum gönguleiðum. Að öðru leyti verður umferð um hraunið óheimil, vegna náttúruverndar- og öryggissjónarmiða, en hraunið er víðast illfært.
Umhverfi á Flæðunum hefur breyst mikið í eldsumbrotunum og óljóst er hvernig leysingarvatn frá Dyngjujökli finnur sér farveg á ný. Auk þess rann hraunið yfir veginn sem liggur um Flæður og því eru ferðaleiðir breyttar. Ferðafólk er því hvatt til þess að kynna sér hvernig umferð um svæðið verður háttað í sumar hjá Vatnajökulsþjóðgarði.
Viðbúnaður vegna jarðhræringa við Bárðarbungu færður niður á óvissustig

Tengdar fréttir

Ríkisstjórnin samþykkir aukin framlög vegna Holuhrauns
Stofnanir sem unnið hafa að vöktun, viðbúnaði og mælingum vegna Holuhrauns og eldsumbrotanna norðan Vatnajökuls fá 448,7 milljónir króna.

Allt að sex milljónir fylgdust með beinni útsendingu frá Holuhrauni
Bandarískir áhorfendur fylgdust heillaðir með á meðan dróni var notaður til að fljúga yfir eldstöðina en margir þeirra voru að sjá myndir af Íslandi í fyrsta sinn.

Flugu yfir eldgosið og urðu vitni að einstöku augnabliki
Eins og sjá má myndar mökkurinn ansi kunnuglegt munstur og sólin hittir á skemmtilegan stað.

Eldgosinu í Holuhrauni er lokið
Vísindamannaráð almannavarna fundaði í morgun vegna umbrotanna í Bárðarbungu og var niðurstaða fundarins að eldgosinu, sem hófst 31. ágúst 2014 í Holuhrauni væri lokið.