Innlent

Hætta gæti aukist á öflugu sprengigosi í Bárðarbungu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur telur hættu aukast á öflugu sprengigosi í Bárðarbungu eftir því sem dragi úr yfirstandandi gosi í Holuhrauni. Þá telur hann enn hættu á því að ný eldsprunga opnist undir Dyngjujökli með flóðbylgju niður í Jökulsá á Fjöllum.

Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun könnuðu eldstöðina um síðustu helgi og tók Guðbergur Davíðsson kvikmyndatökumaður þá þær myndir sem sýndar voru í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Eldár flæddu til norðvesturs og austurs frá gígnum um helgina. Fjær er sporður Dyngjujökuls.Mynd/Guðbergur Davíðsson.
Allt frá því jarðeldurinn kom fyrst upp í lok ágústsmánaðar hefur gosið haldið sig á þessum sama stað, í hinu gamla Holuhrauni norðan Dyngjujökuls. Almenningi hefur allan tímann verið bannað að nálgast gosstöðvarnar, aðallega vegna hættu á að gossprunga gæti opnast undir jökli og valdið miklu hlaupi. Þær spár hafa ekki ræst til þessa en Ármann Höskuldsson telur hættuna enn vera til staðar. 

„Það þarf voðalega lítið til þess að það verði einhver höft í þessari hraunrás, sem er að leiða kvikuna upp á yfirborð, og ef það gerist er allt eins víst að kvikan brjóti sér leið undir jöklinum,“ segir Ármann.

Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur.Stöð 2/Einar Þorsteinsson.
Þótt eldgosið teljist enn mjög öflugt hefur talsvert dregið úr þrótti þess og kvikumagnið sem upp kemur á hverri sekúndu er núna um fimmtungur af því sem mest var í haust. Kvikan er talin koma úr Bárðarbungu og ein stærsta spurningin hefur verið sú hvort gos kæmi þar upp. 



Ármann segir vísbendingar um að Bárðarbunga hafi verið að safna í sig kviku allt frá árinu 1974, að minnsta kosti. Varmaforðinn undir Bárðarbungu sé þar ennþá til staðar.

„Það er eins víst að þegar dregur úr þessu gosi, kannski fyrstu vikurnar eftir að þetta gos fer virkilega að minnka, eða jafnvel hætti, þá bara eykst áhættan á því að Bárðarbunga fari af stað.“

Ólgandi hrauneðjan flæðir út úr gígnum á laugardag. Magn kvikunnar er áætlað meira en meðalrennsli Blöndu.Mynd/Guðbergur Davíðsson.
Ármann segir óskandi að slíkt gos yrði lítið, í líkingu við Gjálpargosið eða síðasta Grímsvatnagos. 

„En við getum líka alveg átt von á því að fá bara mjög stórt gos upp úr Bárðarbungu. Það er mikil kvika búin að vera á ferðinni og svona kvika er nógu heit til þess að geta brætt umhverfi sitt og búið til meiri sprengivirkari kviku, sem er bara ekki alveg nógu jákvætt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×