Innlent

Fíladelfíusöfnuðurinn stendur með Gísla Frey

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Söfnuðurinn stendur með stjórnarmanninum.
Söfnuðurinn stendur með stjórnarmanninum.
„Við stöndum með Gísla Frey og viljum sjá hann byggjast upp,“ segir Aron Hinriksson, formaður stjórnar Fíladelfíusafnaðarins í samtali við Vísi.

Gísli Freyr Valdórsson, sem fékk í dag átta mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir að leka minnisskjali úr innanríkisráðuneytinu í fyrra hefur gegnt embætti meðstjórnanda í stjórn safnaðarins.

Minnisblaðið sem Gísli lak sneri að hælisleitandanum Tony Omos, eiginkonu Omos og annarri konu. Síðastliðið ár hefur Gísli ítrekað haldið fram sakleysi sínu og til stóð að aðalmeðferð í málinu færi fram í dag. Fjölmörg vitni voru boðuð en Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og starfsmenn ráðuneytisins voru þar á meðal. Í ljósi breyttrar afstöðu hans fór fyrirtaka fram í morgun.

Aron segist ekki getað tjáð sig um hvort dómurinn og sú staðreynd að Gísli hafi viðurkennt brot sitt hafi áhrif á veru hans í stjórn safnaðarins. „Það er verið að vinna í þessum málum. Það hefur ekki náðst að kalla stjórnina saman. Auðvitað þarf að skoða öll þessi mál. Þetta kom okkur öllum á óvart þegar við fréttum þetta í gær.“

Söfnuðurinn stendur samt sem áður með Gísla: „Já, við viljum sjá hann vinna sig í gegnum þessa erfiðleika sem hann stendur í núna. Við þekkjum hann af góðu einu. En eins og hann er sjálfur að gera, þarf að takast á við afleiðingar gjörða sinna.“


Tengdar fréttir

Svona var atburðarásin í lekamálinu

Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×