Viðskipti innlent

Íslendingar ættu að geta tekið upp Evru á 2-3 árum

Ingvar Haraldsson skrifar
Frá kynningarfundi skýrslunnar í morgun. Þar fór Ásgeir Jónsson yfir hvaða áhrif upptaka Evru myndi hafa á Íslandi.
Frá kynningarfundi skýrslunnar í morgun. Þar fór Ásgeir Jónsson yfir hvaða áhrif upptaka Evru myndi hafa á Íslandi. Mynd/GVA
Í skýrslu Alþjóðamálastofnunnar er fullyrt að Ísland ætti að geta tekið upp Evru á 2-3 árum eftir að gengið er inn í ERM-II ferlið.

Það er rökstutt með því að benda á reynslu annarra smáríkja sem tekið hafa upp Evru. Sex af þeim 8 smáríkjum sem tekið hafa upp Evru hafa gert það á 2-3 árum eftir inngöngu í ERM-II. Jafnframt er bent á að árin 1989-2001 þegar Ísland studdist við fastgengi hafi verðbólga verið lág.

Þegar Evrunni var komið á fót um aldamótin var Ísland eitt fárra Evrópuríkja sem uppfyllti Maastricht skilyrðin. Því sé ekkert því til fyrirstöðu að Ísland ætti að geta uppfyllt Maastricht skilyrðin á tiltölulega skömmum tíma.

Skýrsluhöfundar mæla með upptöku Evru og segja:

„Þegar allt þetta er dregið saman, auk þess að taka tillit til þess mikla viðskiptaábata sem alþjóðleg og greiðsluhæf mynt getur sannanlega fært smáþjóðum, verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að myntbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“

Einnig segir að jákvæð áhrif fyrir heimili og atvinnulíf yrðu veruleg. Það myndi birtast í lægri verðbólgu og lægri vöxtum auk þess að gengisóstöðugleiki myndi hverfa.

Í skýrslunni segir að trúverðug áætlun um upptöku Evru gæti flýtt verulega fyrir losun hafta. Í aðlögunarferlinu muni Seðlabanki Evrópu kaupa allar þær krónur sem boðnar verði til sölu. Því verður ekkert því til fyrirstöðu að þeir aðilar sem eigi krónur á Íslandi muni geta flutt það fé úr landi án þess að hafa áhrif á hagkerfi landsins.

Þó kemur kostnaður á móti. Atvinnuleysi mun verða breytilegra en langtíma atvinnustig ætti að vera hið sama. Með upptöku Evru munu íslensk verkalýðsfélög þurfa að semja um lægri launahækkanir í kjarasamningum en áður.

Ef því verði ekki fylgt myndi það draga verulegan dilk á eftir sér með verri samkeppnisstöðu og síðan kreppu. Íslendingar munu þurfa að fóra sjálfstæðri peningamálastefnu. Þar með mun möguleikinn á að fella gengið í kreppu vera úr sögunni. Íslendingar munu einnig þurfa að fórna að einhverju leiti sjálfsstæði í ríkisfjármálum.  

Þá segir jafnframt að eftir upptöku Evru mun Ísland áfram fullvalda ríki og bera ábyrgð á eigin efnahagsstjórn. Það er því undir Íslendingum komið hvernig tekst til að vinna í innan Evrunnar.

Frekar má lesa um málið hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ísland áhrifalaust með EES-samningum

Pia Hanson, forstöðukona Alþjóðamálastofnunar, gagnrýndi EES-samninginn þegar hún kynnti skýrslu um Evrópumál. Hún sagði Ísland hafa innleitt tvo þriðju laga og reglna Evrópusambandsins nú þegar.

"Liggur fyrir að alþjóðleg greiðsluhæf mynt muni skila velferðarbata“

Ásgeir Jónsson, hagfræðingur við Háskóla Íslands, gefur lítið fyrir að tengja sjálfstæði og fullveldi við mynt sem hægt er að fella. Hann bendir á að Ísland sé eina ríkið í heiminum með undir tvær milljónir íbúa sem sé með sjálfstæðan, fljótandi gjaldmiðil.

Borgar sig að vera áfram umsóknarríki

Ísland á meiri möguleika á að gæta hagsmuna sinna í EES-samstarfinu ef það viðheldur stöðu sinni sem viðurkennt umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×