Matur

Beyoncé elskar Oreo: Trufflur, brúnkur, örbylgjukaka og smákökur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Söngkonan Beyoncé, sem dvelur nú á landinu, hefur margoft sagt í viðtölum að hennar uppáhalds góðgæti væri Oreo-kex. Hefur hún meira að segja látið hafa það eftir sér að hún klári pakkann ef hann er keyptur.

Lífið fór á stúfana og fann nokkrar uppskriftir sem innihalda nóg af Oreo-kexi og gætu fallið í kramið hjá söngkonunni.

Oreo-trufflur

18 Oreo-kexkökur

225 g mjúkur rjómaostur

1 bolli hvítt súkkulaði

1/2 tsk kókosolía

1/4 bolli súkkulaði



Myljið Oreo-kökurnar í matvinnsluvél og blandið mylsnunni saman við rjómaost. Búið til litlar kúlur úr deiginu og setjið í frysti í allt að klukkutíma. Bræðið hvíta súkkulaðið og kókosolíuna. Setjið tannstöngul í hverja Oreo-kúlu og dýfið ofan í hvíta súkkulaðið. Leyfið súkkulaðinu að harðna. Bræðið súkkulaði og skreytið kúlurnar með því.

Oreo-örbylgjukaka

9 Oreo-kexkökur

1/2 tsk lyftiduft

1/2 bolli mjólk

1 1/2 tsk sykur

vanilluís



Smyrjið 1 til 2 könnur með olíu og setjið til hliðar. Myljið Oreo-kexkökurnar í matvinnsluvél og blandið saman við lyftiduft, sykur og mjólk. Hellið blöndunni í könnurnar og hitið í örbylgjuofni - 1 mínútu og 45 sekúndur fyrir litlar könnur eða 2 mínútur fyrir stórar könnur. Takið könnurnar úr örbylgjuofni og leyfið þeim að kólna í tíu mínútur. Skreytið með vanilluís og njótið.

Oreo-brúnkur

1/2 bolli bráðið smjör

3/4 bolli sykur

1/2 bolli ljós púðursykur

2 stór egg

1 msk olía

2 tsk vanilludropar

3/4 bollar hveiti

1/2 bolli kakó

1/2 tsk matarsódi

1/2 tsk salt

16 Oreo-kexkökur

5 Oreo-kexkökur til að skreyta

1 bolli þeyttur rjómi



Hitið ofninn í 175°C. Blandið saman smjöri, sykri og púðursykri. Bætið einu eggi við í einu og blandið vel saman. Bætið því næst olíu og vanilludropum saman við. Blandið hveiti, kakói, matarsóda og salti saman í annarri skál. Bætið þurrefnablöndunni saman við smjörblönduna í fjórum hollum. Hellið helmingnum af blöndunni í form. Setjið 16 Oreo-kexkökur yfir deigið og hellið síðan restinni yfir. Bakið í 20 til 25 mínútur. Kælið og skreytið með rjómanum og Oreo-kexkökunum.

Oreo-smákökur

230 g mjúkt smjör

1 bolli púðursykur

1/2 bolli sykur

2 egg

1 tsk vanilludropar

2 1/4 bolli hveiti

2 tsk salt

1 tsk matarsódi

1 1/2 bolli súkkulaði, saxað

1/2 bolli hvítt súkkulaði, saxað

15 Oreo-kökur, saxaðar



Hitið ofninn í 170°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötur. Blandið smjöri, púðursykri og sykri vel saman. Bætið við eggjum og vanilludropum og hrærið. Blandið hveiti, salti og matarsóda saman í annarri skál. Bætið þurrefnablöndunni varlega saman við smjörblönduna. Bætið súkkulaðinu og Oreo-kexinu varlega saman við. Búið til kúlur úr deiginu og fletjið þær aðeins út með lófanum á ofnplötunni. Bakið í tíu mínútur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×