Innlent

Fjórða M-ið á Landspítala: Mýs í húsi húð- og kynsjúkdómadeildar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekki liggur fyrir hvernig mýsnar komust inn í hús húð-og kynsjúkdómadeildar en þær komust aldrei inn á deildina sjálfar þar sem sjúklingar eru.
Ekki liggur fyrir hvernig mýsnar komust inn í hús húð-og kynsjúkdómadeildar en þær komust aldrei inn á deildina sjálfar þar sem sjúklingar eru.
„Þetta er nú sem betur fer ekki algengt,“ segir Aðalsteinn Pálsson, deildarstjóri fasteignadeildar Landspítalans aðspurður um mýs sem voru í húsnæði húð-og kynsjúkdómadeildar.

„Það var ein mús veidd núna fyrir um þremur dögum og svo var annað tilfelli í húsinu fyrir um tveimur mánuðum síðan. Í hvorugt skiptið komust mýsnar samt inn á deildina sjálfa þar sem sjúklingar eru,“ segir Aðalsteinn.

Hann segir ekki liggja fyrir hvernig mýsnar komust inn; hvort það hafi verið í gegnum opnar dyr, lausa klæðningu eða eitthvað annað. Aðalsteinn segir nú sé verið að yfirfara húsið til að sjá hvort og þá hvar mýsnar hafi getað komist inn.

Húð-og kynsjúkdómadeild stendur í gömlu timburhúsi austan megin á lóð Landspítalans í Fossvogi. Þar var áður trésmíðaverkstæði og saumastofa og var húsið ekki byggt til að vera í notkun í áratugi, eins og það hefur nú verið.

„Þetta er í rauninni bráðabirgðahúsnæði sem var byggt til að standa í nokkur ár. Það er ef til vill ekki nógu þétt eða nógu vel einangrað, og þá er auðvitað ákveðin hætta á að mýs komist inn. Svo stendur húsið auðvitað við grænt svæði hérna í Fossvoginum og það er auðvitað alþekkt að mýs leita inn í hlýjuna þegar hausta tekur.“

Aðalsteinn ítrekar þó að þetta gerist ekki oft en hafi þekkst af og til í gegnum árin, sérstaklega í þeim húsum spítalans sem standa við græn svæði.

Mauraeitrið lofar góðu

Aðspurður um hvernig gangi að ráða að niðurlögum faraó-mauranna, sem gerðu sig heimakomna í einu af húsum spítalans á Hringbraut, segir Aðalsteinn það ganga vel:

„Það var eitrað fyrir þeim aðfaranótt sunnudags og eitrið lofar góðu. Það er farið á hverju kvöldi og svæðið vaktað til að fylgjast með hvernig eitrið virkar. Sums staðar eru maurarnir alveg horfnir og annars staðar sjást nokkrir enn. Okkur er sagt að maurarnir geti lifað í allt að 2-3 mánuði svo við verðum að vakta svæðið að minnsta kosti næstu tvo mánuði.“

Þá bætir Aðalsteinn að kannað hafi verið með maura á öðrum deildum spítalans við Hringbraut og enginn staðfest tilfelli komið upp.


Tengdar fréttir

Maurar fundust á Landspítalanum

Farómaurar hafa fundist á nokkrum stöðum í einu af húsum Landspítalans við Hringbraut. Á meðal deilda í húsinu eru framleiðslueldhús spítalans, heilbrigðistæknideild og trésmíðaverkstæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×