Innlent

Stæði fyrir fatlaða fjarlægt: Mistök hjá borginni

Nanna Elísa Jakobsdótitr skrifar
Hvorki Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs, (efri mynd) né Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri, (neðri mynd) geta útskýrt hvernig stæðið kom til.
Hvorki Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs, (efri mynd) né Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri, (neðri mynd) geta útskýrt hvernig stæðið kom til.
Hvorki Reykjavíkurborg né Bílastæðasjóður geta gefið skýringar á því hvers vegna stæði fyrir fatlaða við Hlemm var með jafnslæmu aðgengi og raun bar vitni. Stæðið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum í síðustu viku.

„Ég verð að segja að ég veit ekki hvernig þetta stæði kom til,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. Hún tekur þó jafnframt fram að það sé í raun ekki í verkahring Bílastæðasjóðs að ákveða staðsetningu bílastæða fyrir fatlaða en sjóðurinn hafi eftirlit með þeim.

„Þetta er alveg skelfilegt að sjá. Ekki bara að mælirinn, tunnan og merkið hafi allt verið fyrir heldur er þetta alltof lítið stæði og alveg við gangbraut.“

Fjarlægðu merki og afmáðu málningu

Stæðinu hefur nú verið breytt, skiltið fjarlægt og málningin afmáð. Tvö önnur stæði fyrir fatlaða eru nálægt því sem fjarlægt var. „Ég segi bara að þetta voru mistök. Þetta stæði var ekki boðlegt til að standa undir því að vera stæði fyrir fatlaða, uppá stærðina að gera og hvað þá að komast út úr bílnum.“

Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, hefur heldur engar skýringar á því hvernig stæðið kom til. „Þetta hefur verið svona alltof lengi,“ viðurkenndi hann í samtali við Vísi. „Þetta var alls ekki í lagi. Það er alveg á hreinu.“ Ólafur telur aðstöðu fyrir fatlaða í borginni almennt mjög bærilega. Hann getur lítið tjáð sig um þá gagnrýni Ellenar Calmon, formanns Öryrkjabandalags Íslands, að ferlinefnd sem starfar að samgöngumálum í Reykjavíkurborg sé óvirk og rödd fatlaðra heyrist því lítið í umræðu um samgöngumál borgarinnar. „Ég hef ekki sjálfur verið tengdur við þessa nefnd,“ útskýrir hann. „Við áttum ágætan fund með tveimur fulltrúum fatlaðra fyrir stuttu síðan en tiltekin nefndaskipan er eitthvað sem ég þarf að fá að glöggva mig á.“ 

Til stendur að setja upp hjólastæði í stæðinu. 

Tvö stæði fyrir fatlaða liggja ofar í götunni og eru þau talin nægja til að tryggja aðgengi fyrir fatlaða.Mynd/Pjetur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×