Tónlist

Kjartan Sveinsson er hættur í Sigur Rós

Freyr Bjarnason skrifar
Kjartan Sveinsson (lengst til vinstri) ásamt fyrrum félögum sínum í Sigur Rós.fréttablaðið/gva
Kjartan Sveinsson (lengst til vinstri) ásamt fyrrum félögum sínum í Sigur Rós.fréttablaðið/gva
Hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson er hættur í hljómsveitinni Sigur Rós eftir að hafa verið meðlimur hennar í fimmtán ár. Fréttablaðið fékk þetta staðfest úr herbúðum sveitarinnar í gær.

Sigur Rós verður framvegis þriggja manna hljómsveit, skipuð stofnmeðlimunum Jóni Þóri Birgissyni og Georg Holm, og Orra Páli Dýrasyni. Enginn liðsmaður verður fenginn í stað Kjartans, nema á tónleikaferðum. Sigur Rós er á síðustu metrunum að klára nýja plötu sem er væntanleg síðar á þessu ári.

Upptökur hófust hér á landi í fyrra en hafa staðið yfir í Los Angeles að undanförnu, án aðkomu Kjartans.

Brotthvarf hans hefur legið í loftinu í nokkurn tíma. Þrátt fyrir að hafa spilað inn á síðustu plötu Sigur Rósar, Valtari, tók Kjartan ekki þátt í tónleikaferð um heiminn til að fylgja henni eftir.

Samningur Sigur Rósar við stórfyrirtækið EMI, sem hefur gefið út síðustu plötur sveitarinnar í Evrópu og í Asíu, rann út eftir útgáfu Valtara. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vildi Kjartan virða samninginn við EMI áður en hann hyrfi á braut.

Kjartan vildi ekki ræða við Fréttablaðið um brotthvarf sitt. Hann ætlar að halda áfram að semja kvikmyndatónlist og starfa sem upptökustjóri, auk þess sem hann er eigandi hljóðversins Sundlaugarinnar ásamt Birgi Jóni Birgissyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×