Innlent

Líkir Hannesi við mykjudreifara

Jóhannes Stefánsson skrifar
Háskólaprófessorinn sparar ekki stóru orðin þegar hann lýsir samstarfsmanni sínum.
Háskólaprófessorinn sparar ekki stóru orðin þegar hann lýsir samstarfsmanni sínum. GVA/Valli
Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, fer mikinn í nýju bloggi sínu þar sem hann gerir lítið úr Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessori og samstarfsmanni sínum, og kallar hann meðal annars "mykjudreifara" og "vúdu-skáld."

Prófessorarnir hafa um langt skeið átt í ritdeilum þar sem þeir takast á um þjóðmál, hagfræði og stjórnmál. Stefán Ólafsson er ekki spar á stóru orðin í nýjasta blogginu sem birtist á Eyjunni og liggur Hannesi á hálsi fyrir að hafa ekkert gagn gert í samfélaginu auk þess að vera mykjudreifari og vúdú-skáld.

„Í fyrrasumar hlutu mykjudreifari frjálshyggjunnar (AMX-vefurinn) og vúdú-skáldið Hannes Hólmsteinn frelsisverðlaun Kjartans sameiginlega, fyrir framlag sitt á liðnum árum. Það var snjallt, enda mykjudreifarinn og Hannes eitt og sama fyrirbærið!" Segir í bloggi Stefáns.

Hommar og lesbíur gert gagn en ekki frjálshyggjumenn

Hannes Hólmsteinn er ekki sá eini sem Stefán fer ófögrum orðum um í blogginu. Gunnlaugur Jónsson framkvæmdastjóri Eykons Energy, sem hefur fengið leyfi til olíuvinnslu á Drekasvæðinu, verður líka fyrir barðinu á háskólaprófessornum. Stefán segir Gunnlaug enga reynslu hafa af því að bora eftir olíu og að hann muni líkast til beita vúdú-hagfræði við útreikning á arðsemi af olíuleitinni.

Þá segir hann Gunnlaug hafa gert tilraun til að breyta frjálshyggjunni í hippahreyfingu. Þar vísar Stefán til bókar Gunnlaugs Jónssonar, Ábyrgðarkver, þar sem hann færir rök fyrir því að bankar hafi fyrir hrun getað farið með fé annarra án þess að eigendur þeirra þyrftu að bera ábyrgð á því sem illa færi vegna ríkisábyrgðar. Stefán segir Gunnlaug einnig hafa hannað nýtt merki fyrir Frjálshyggjufélagið á Íslandi til að reyna að mýkja ímynd þess.

Stefáni er einnig tíðrætt um frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar, sem Gunnlaugur og Samtökin 78' hlutu í ár. Um það segir Stefán: „Samtökin 78 hlutu einnig frelsisverðlaun frá Kjartani Gunnarssyni að þessu sinni. Það hefur sennilega verið gert til að ljá verðlaununum meiri vikt og virðingu, enda hafa hommar og lesbíur gert alvöru gagn í samfélaginu – ólíkt frjálshyggjumönnum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×