Samferðamenn Jóns Gnarr um hann: "Hann er óútreiknanlegur, eins og allir vita" Hrund Þórsdóttir skrifar 30. október 2013 18:54
Jón tilkynnti í útvarpsþættinum Tvíhöfða í morgun að hann ætlaði að hætta í pólitík. Hann segir ákvörðunina tekna að vandlega íhuguðu máli en veit ekki hvað tekur við. Hann dreymir um að opna bingóbar. „Það er að segja bar sem er bingó og bar, þar sem þú getur drukkið og spilað bingó. En mér finnst það kannski dálítið mikið vesen svo ég veit ekki hvort ég læt af því verða,“ segir Jón. Hann segir jákvæð samtöl við fólk standa upp úr eftir störf hans í stjórnmálum. „Vinnan er að mörgu leyti uppbyggileg og skemmtileg en mér finnst hlutur leiðinlegra samskipta of mikill.“ Besti flokkurinn mun renna saman við Bjarta framtíð og tilkynnti flokkurinn í dag framboð til borgarstjórnarkosninganna í vor. Hann hyggur jafnframt á framboð víða um land. Jón var vel þekktur sem listamaður og grínisti áður en hann tók við sem borgarstjóri í Reykjavík þann 15. júní árið 2010. Ári fyrr stofnaði hann Besta flokkinn sem fékk 6 borgarstjórnarfulltrúa kjörna. Góðu gengi í kosningunum var fagnað með eftirminnilegum hætti, eins og sjá má í meðfylgjandi sjónvarpsfrétt. Jón hefur verið ötull talsmaður mannréttinda og oft farið óhefðbundnar leiðir til að koma boðskap sínum á framfæri. Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, hefur starfað náið með Jóni og mun áfram vinna með Bjartri framtíð. Sjálf hyggur hún ekki á framboð og hún virðir ákvörðun Jóns. „Það er búið að búa til mjög stórt pláss fyrir okkur hin til að halda áfram og gera mjög góða hluti,“ segir Heiða. S. Björn Blöndal, pólitískur ráðgjafi Jóns, hyggur hins vegar á framboð í vor. „Mér finnst þetta bara góð ákvörðun hjá Jóni, hann veit hvað hann er að gera og við stöndum öll á bak við hann í þessu. Þetta er bara nýtt upphaf,“ segir S. Björn. Hvað finnst þér um þessa ákvörðun Jóns? „Það er gríðarleg eftirsjá að Jóni úr borgarpólitíkinni, það er það sem stendur upp úr,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. „Ég held að hann skilji eftir sig ákveðna trú á því að stjórnmálin geti endurnýjað sig og það sé hægt að gera þetta nýtt og skemmtilegra, en ég neita því ekki að hann skilur líka eftir sig stórt skarð sem er vandfyllt,“ segir Dagur. „Mér finnst ákvörðun hans kjarkmikil og til marks um að hann er óvenjulegur maður sem gerir óvenjulega hluti ,“ segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna. Hvernig var að starfa með Jóni? „Það hefur verið gott,“ segir Sóley. „Hann er skrýtinn en það erum við sjálfsagt öll. Hann er öðruvísi og við höfum tekið upp öðruvísi vinnubrögð í Reykjavík, að hluta til vegna hans,“ segir hún. „Auðvitað hefur okkur greint á í mörgum efnum og ég hef gagnrýnt margt af því sem verið hefur gert á þessu kjörtímabili en það heur auðvitað aldrei snúist um persónuna Jón Gnarr,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Verður einhver eftirsjá að honum úr pólitíkinni? „Já, hann er auðvitað litríkur stjórnmálamaður,“ segir Júlíus. Snorri Steinþórsson hefur starfað sem kokkur í Ráðhúsinu frá opnun þess. „Ég er bara dálítið svekktur verð ég að segja. Ég hefði alveg verið til í að hafa hann áfram sem borgarstjóra,“ segir Snorri. Hann segir Jón ekki mikinn matmann. „En hann getur dottið í að vera grænmetisæta í mánuð eða tvo en svo fær hann sér hamborgara, franskar og kokteilsósu allt í einu, upp úr þurru. Þannig að hann er óútreiknanlegur, eins og allir vita.“
Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira