Viðskipti innlent

1,8 milljarða króna krafa á móðurfélag Olís gefin eftir

Þórður Snær Júlíusson skrifar
Olís Félagið er á meðal stærstu eldsneytissala landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Olís Félagið er á meðal stærstu eldsneytissala landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Olíuverzlun Íslands, betur þekkt sem Olís, tapaði 29,3 milljónum króna í fyrra, krafa sem félagið átti á móðurfélag sitt upp á 1,8 milljarða króna var gefin eftir og skuldir þess endurfjármagnaðar. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Olís.

Í ársreikningnum kemur meðal annars fram að „í desember 2011 var gengið frá samkomulagi við viðskiptabanka félagsins [Landsbankann] varðandi endurfjármögnun og leiðréttingu á lánum félagsins. Samhliða því samkomulagi er gert ráð fyrir aðkomu nýrra hluthafa að félaginu á árinu 2012 og mun koma til hlutafjáraukningar á fyrri hluta ársins sem mun verða ráðstafað til greiðslu skammtímaskulda við bankann".

Sú hlutafjáraukning átti sér stað í febrúar síðastliðnum þegar hlutafé Olís var lækkað um 502,5 milljónir króna að nafnvirði, eða um 75 prósent. Það var síðan samstundis hækkað aftur um sama magn. Fyrir breytinguna átti FAD 1830, sem nú heitir GESE ehf., allt hlutaféð. Það félag er í eigu Einars Benediktssonar og Gísla Baldurs Garðarssonar. Eftir breytinguna átti félagið 25 prósenta hlut. Samherji og FISK Seafood, dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, greiddu fyrir hlutafjáraukninguna og eru því orðnir eigendur að meirihluta í Olís.

Í ársreikningnum kemur fram að skuldir Olís hafi verið 16,8 milljarðar króna um síðustu áramót og hækkuðu um 300 milljónir á milli ára. Athygli vekur þó að afborganir langtímalána námu 7,6 milljörðum króna á árinu 2011 og skammtímaskuldir við lánastofnanir jukust um tæpa fjóra milljarða króna.

Samkomulag Olís við Landsbankann gerði einnig ráð fyrir því að Olís myndi sameinast móðurfélagi sínu, GESE ehf., og systurfélaginu Sandfelli ehf. ef Samkeppnisyfirvöld myndu samþykkja breytingarnar. Það samþykki fékkst nú í september. Í ársreikningi Olís segir að „við samruna félaganna mun krafa Olíuverzlunar Íslands hf. á hendur móðurfélagi sínu að fjárhæð 1.781 millj. kr. falla út á móti skuld móðurfélagsins". Ekki liggur fyrir hvaða önnur áhrif endurskipulagningin mun hafa á fjárhag GESE ehf. Félagið skilaði síðast ársreikningi árið 2007. Þá skuldaði félagið 6,8 milljarða króna. Eina eign þess á þeim tíma var öll hlutabréf í Olís sem metin voru á 6,8 milljarða króna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×