Þóra bjartsýn - Þrjár vikur langur tími í kosningabaráttu 10. júní 2012 13:37
Þóra Arnórsdóttir segist enn vongóð um góða árangur í forsetakosningunum þrátt fyrir að Ólafur Ragnar Grímsson mælist með langmest fylgi í nýjum könnunum. Þrjár vikur sé langur tími í kosningabaráttu. Þóra var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættium Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Eftir umræðuþætti í sjónvarpi í síðustu viku bætti Þóra aðeins við sig fylgi og í könnun sem birt var á fimmtudag mælist hún nú með 39 prósent fylgi. Ólafur Ragnar er samt enn með 7 prósentustiga forskot á hana samkvæmt sömu könnun. Samkvæmt nýrri netkönnun sem birtist í morgun er Ólafur Ragnar með 50 prósent fylgi. Þóra kemur þar á eftir með 33,2 prósent. Þóra hefur samt ekki sérstakar áhyggjur af þessu. „Bæði það að skoðanakannanirnar eru svo ægilega misvísandi. Það eru tvær kannanir kannski gerðar á dag sem sýna gjörólíkar niðurstöður. Og það að það eru þrjár vikur. Ég finn bara svo ofboðslegan kraft í mínu fólki. Ég held líka að þetta hafi verið svolítið spark í rassinn fyrir okkur, af því við fórum svo vel af stað. Nú er alls kyns fólk að stíga fram og segja: Ég vil vinna. Hvað á ég að gera. Þannig að ég hef fulla ástæðu til að vera bjartsýn. Þrjár vikur er langur tími í kosningabaráttu," sagði Þóra. Þóra segir að grundvallar munur sé á henni og Ólafi Ragnari. „Ég er bara ekki viss um að það sé heppilegt að forsetinn sé mjög upptekinn af valdi og valdsviði sínu. Ekki frekar en ég tel að það sé heppilegt að hann taki afstöðu í stórum pólitískum deilumálum. Forsetinn hefur næg verkefni þó hann sé ekki að túlka valdsvið sitt víðara en hefur tíðkast." sagði Þóra Arnórsdóttir, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Sjá meira