Skoðun

Ingólfstorg – lausn á málinu

Halla Bogadóttir skrifar
Allir sem tekið hafa þátt í umræðu undanfarið um fyrirhugaðar framkvæmdir við Ingólfstorg, Austurvöll og Fógetagarð virðast sammála um eitt: Deiliskipulagið sem gildir um þennan reit er meingallað. Hvað er til ráða?

Aðeins þrjár leiðir?

Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi og varaformaður skipulagsráðs, skrifaði grein í Fréttablaðið 26. júlí sl. og sagði þar að borgin ætti þrjá valkosti.Þeir væru:

1. Að fara eftir því sem deiliskipulagið heimilar. Fáir munu sáttir við þessa leið.

2. Að fara dómstólaleiðina. Margir hafa hvatt borgaryfirvöld til að leyfa ekki byggingar að fullu í samræmi við deiliskipulagið og láta reyna á hvort skaðabótakrafa kæmi fram. Þannig fengist svar við því hver bótakrafan yrði og hver yrði niðurstaða dómstóls. Hugsanlegt væri að út úr þessu kæmi viðunandi lausn en borgaryfirvöld vilja ekki hætta á að illa fari, fjárhagslega.

3. Að byggja í samræmi við vinningstillögu, eða vinningstillögur, í nýafstaðinni samkeppni. Þetta telur Hjálmar ákjósanlegustu leiðina. Margir hafa hins vegar orðið til að benda á að ekki sé unnt að gera hvort tveggja, reisa stórt hótel og sýna gamalli byggð virðingu og sóma um leið.

Fjórða leiðin, að vinda ofan af

Við sem myndum BIN-hópinn svonefnda (Björgum Ingólfstorgi og Nasa) höfum bent á fjórðu leiðina, sem er farsælust að okkar mati. Hún snýst um makaskipti og aðkomu yfirvalda að ráðstöfun húsa á hinum mikilvæga reit.

a. Reykjavíkurborg fái lóðarhafa góða lóð annars staðar, þar sem vel færi á að reisa stórt hótel, en hlyti í staðinn lóðir hans á umræddu svæði. Með því móti losnaði eigandinn við tímafrekan og kostnaðarsaman fornleifauppgröft sem hann þyrfti ella að kosta og það tefði fyrir öllum framkvæmdum, einkum í Vallarstræti og Kirkjustræti.

b. Reykjavíkurborg leysi til sín Kvennaskólann, Nasasalinn, Hótel Vík og Brynjólfsbúð. Þrjú hin síðastnefndu yrðu gerð upp og ráðstafað að nýju, og öll væntanlega seld. Miðað yrði við svipaðan rekstur í Nasasalnum og verið hefur, við miklar vinsældir. Samkvæmt vinningstillögu skal salurinn hins vegar rifinn en reistur hótelsalur í staðinn.

c. Borgin eignist Landsímahúsið (Thorvaldsensstræti 4), eitt virðulegasta hús Reykjavíkur, teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Húsið mætti nýta sem menningarhús enda verði horfið frá hugmyndum um menningarhús á Ingólfstorgi. Á jarðhæð verði veitingarekstur með útiveitingum við Austurvöll. Ingólfstorg verði ekki minnkað en mætti auðvitað lagfæra.

d. Alþingi kaupi hin Símahúsin, önnur en Thorvaldsensstræti 4. Við höfum góðar heimildir fyrir því að á þinginu sé þverpólitískur áhugi á að leita annarra lausna við húsnæðisvanda en þeirra að reisa ný hús á Alþingisreitnum og að í því sambandi þyki Símahúsin álitlegur, eða a.m.k. hugsanlegur, kostur. Takist ekki samningar um kaup húsanna gæti Alþingi tekið þau á leigu.

Göngum í málið

Þessi fjórða leið er í þágu allra Íslendinga og Alþingis. Hún býður upp á enn betra mannlíf á sólríkum dögum og nýjum möguleikum á bættu menningarlífi. Nú reynir á borgarfulltrúa að takast á við vandann og minnast þess að pólitík er list hins mögulega.

BIN hópurinn hefur mótmælt þriðju leiðinni, sem lýst er að ofan, með söfnun undirskrifta á ekkihotel.is og eru þegar komnar tæplega 15.000 undirskriftir. Við hvetjum alla landsmenn til að styðja þessa baráttu með undirskrift sinni.


Tengdar fréttir

Kostir við Ingólfstorg og nágrenni

Reykjavíkurborg efndi síðasta haust, í samvinnu við arkitektafélag Íslands, til opinnar alþjóðlegrar samkeppni um skipulag og uppbyggingu á svæði í miðborginni sem teygir sig frá Ingólfstorgi að Kirkjustræti. 68 arkitektar og arkitektateymi tóku þátt. Sá sem hér skrifar sat í dómnefndinni. Niðurstaða liggur nú fyrir og um hana er deilt á síðum Fréttablaðsins og víðar. Eins og von er.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×