Sandy hefur kostað 14 manns lífið, eignartjón er gífurlegt 30. október 2012 06:26
Ofurstormurinn Sandy hefur þegar kostað 14 manns lífið í sex ríkjum á austurströnd Bandaríkjanna og valið gífurlegu eignatjóni. New York borg er meir og minna myrkvuð vegna rafmagnsleysis og Manhattan er á floti en þar hefur aldrei mælst jafnmikil ölduhæð í sögunni. Nær milljón manns hefur neyðst til þess að yfirgefa heimili sín undan Sandy en talið er að stormurinn geti haft áhrif á líf um 50 milljóna manna vegna flóða, rafmagnsleysis og skemmda á híbýlum. Flestir þeirra sem farist hafa lentu undir trjám sem rifnuðu upp með rótum í storminum. Sandy gekk á landi í New Jersey um kvöldmatarleytið í gærkvöldi að staðartíma. Heldur hefur dregið úr vindstyrk Sandy sem flokkast ekki lengur sem fellibylur þótt vindhviður nái enn fellibylsstyrk. Gífurleg úrkoma fylgir storminum og mikil ölduhæð. Þannig mældist ölduhæðin við Manhattan nær 5 metrar og er það met eða tæplega metra hærra en á sjötta áratugnum þegar fellibylurinn Donna gekk þar yfir. Bílastæðahús og neðanjarðarlestargöng eru yfirfull af vatni. Bílar fljóta um götur Atlantic borgar. Sandy hefur valdið víðtæku rafmagnsleysi þar sem stormurinn herjar. New York er meir og minna í myrkri sökum þess og rýma þurfti eitt af sjúkrahúsum borgarinnar og flytja um 200 sjúklinga annað. Talið er að 6,5 milljónir manna séu nú án rafmagns. Allar almenningssamgöngur og flestar flugsamgöngur liggja niðri í borgunum New York. Boston, Washington, Baltimore og Philadephíu. Ljóst er að eignartjón verður gífurlegt og talið að það geti orðið á bilinu 10 til 20 milljarðar dollara, eða allt upp í 2500 milljarða króna.
Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Fleiri fréttir Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Sjá meira