Innlent

Fordæma „öfgafullt“ frumvarp: Íþyngjandi fyrir skógrækt

Erla Hlynsdóttir skrifar
Bæjarstjórn Norðurþings lýsir yfir áhyggjum af því að „duttlingar“ ráðherra hafi áhrif á skógrækt
Bæjarstjórn Norðurþings lýsir yfir áhyggjum af því að „duttlingar“ ráðherra hafi áhrif á skógrækt Mynd úr safni / Anton Brink
„Það er skoðun bæjarstjórnar Norðurþings að það frumvarp sem hér er kynnt sé öfgafullt og óþarflega íþyngjandi fyrir íbúa landsins. Það á ekki hvað síst við um ákvæði sem virðast íþyngjandi fyrir framgang skógræktar og landgræðslu."

Þetta eru lokaorð harðorðrar bókunar bæjarstjórnarinnar frá 25. janúar um frumvarp til breytinga á lögum um náttúruvernd. Þar tekur bæjarstjórn undir ítarlega greinargerð bæjarráðs frá 13. janúar og gerir að sínum. Í greinargerðinni eru settar fram alvarlegar athugasemdir við frumvarpið í ellefu liðum.



„Hlaðin fordómum
"

„Ráðið telur tillögurnar öfgafullar og óásættanlegar eins og þær eru kynntar og því tilefni til verulegra athugasemda við frumvarpið af hálfu sveitarfélagsins Norðurþings," segir í bókuninni.

Meðal athugasemda er að fjórða grein frumvarpsins um innflutning framandi lífvera á svæði virðist „hlaðin fordómum" í garð nýrra tegunda.

Um þriðju grein þar sem fjallað er um náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar segir: „Markmið breytingarinnar virðist helst vera að auka opinber afskipti af breytingum óverulegs votlendis með tilheyrandi skrifræði og tilkostnaði. " Og auk þess: „Það verður að telja gerræðislegt að vernda sérstaklega með lögum öll þau fjölmörgu votlendissvæði sem ekki eru stærri en 1-3 ha að flatarmáli sem sérstæð og fágæt náttúrufyrirbæri."

Eykur flækjustig

Birkiskóga á einnig að vernda sérstaklega samkvæmt frumvarpinu en þegar eru tiltölulega ítarleg ákvæði til verndar þeim í skógræktarlögum. „Því virðist óþarft, og aðeins til þess fallið að auka flækjustig, að bæta verndun birkiskóga inn í 37. gr. laga um náttúruvernd," segir í bókuninni.

Háð duttlingum ráðherra

Þegar kemur að dreifingu lifandi lífvera segir í frumvarpinu að ráðherra setji um hana reglugerð, en að ráðherra geti ákveðið að vissum tegundum megi dreifa án leyfis ef ekki er talin hætta á að þær ógni líffræðilegri fjölbreytni. Þetta gagnrýna bæjarstjórnarmenn í Norðurþingi og benda á að engin ákvæði eru í tillögunni um á hvaða forsendum ráðherra ákveður lista leyfilegra tegunda og hann getur breytt honum án aðkomu Alþingis. „Þannig virðist t.d. búið að gera alla landgræðslu og skógrækt hérlendis háða duttlungum umhverfisráðherra. Það virðist gerræðislegt og er ekki ásættanlegt að mati bæjarráðs Norðurþings."



Tenglar:

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd



Fundargerð bæjarráðs Norðurþings
, sjá 17. lið




Tengdar fréttir

Vistfræðingar fagna tillögum um náttúruverndarlög

„Stjórn Vistfræðifélags Íslands fagnar meginatriðum tillagna að breytingum á náttúruverndarlögum. Hún telur það vera skref í átt til samræmingar íslenskrar löggjafar við lagasetningar vestrænna ríkja og við alþjóðasamninga og samvinnuverkefna sem Ísland er aðili að.“

Bændur segja lagabreytingar setja túnrækt í uppnám

Bændasamtökin telja að drög að breytingum á náttúruverndarlögum muni hefta og hindra eðilega búskaparhætti, koma í veg fyrir framþróun í landbúnaði og setja venjulega túnræktun í uppnám.

Skógfræðingar segja vistfræðinga á villigötum

Stjórn Skógfræðingafélags Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um breytingar á náttúruverndarlögum. „Fylgismenn og höfundar frumvarps um breytingar á náttúruverndarlögum koma nú fram og saka „tiltekin félagasamtök" og „talsmenn skógræktar" um hörð og ofsafengin viðbrögð við áðurnefndu lagafrumvarpi,“ segir í yfirlýsingunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×