Gaupi: Þetta var súrrealískt Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. maí 2011 17:29 Stemningin var engu lik á Parken.
Íþróttafréttamaðurinn Guðjón "Gaupi" Guðmundsson var á meðal 36.211 áhorfenda á Parken í Kaupmannahöfn í dag þegar AGK tryggði sér danska meistaratitilinn í handbolta. Hann var þar mættur til þess að fylgjast með syni sínum, Snorra Steini, sem átti flotta innkomu í meistaraliðið í dag. "Þetta var súrrealískt. Ég hef hreinlega ekki séð annað eins og hef ég nú séð margt á löngum ferli," sagði Guðjón við Vísi eftir leikinn. Heimsmet í áhorfi á handbolta féll á leiknum en gamla metið var frá 1996 er 35 þúsund manns sáu handboltaleik á Ólympíuleikunum í Atlanta. Svipað margir sáu leik í Afríkukeppninni í Egyptalandi fyrir nokkru síðan. Metið í leik félagsliða var aftur á móti 31 þúsund en það var sett árið 2004 er Lemgo og Kiel spiluðu í Schalke. "Þetta var alveg með ólíkindum og gaman að fá að upplifa þetta. Það var stemning út um allt og síðan gaman í hálfleik er Jesper Nielsen kynnti Guðjón Val og Óla Stefáns sem nýja leikmenn félagsins," sagði Guðjón. Jesper Nielsen, eigandi AGK, er ábyrgur fyrir þessu flotta heimsmeti en hann hefur lyft grettistaki fyrir handboltann í Danmörku í vetur og lyft honum á hærrri stall en áður. "Hann er magnaður og það gengur allt upp hjá honum. Svo var áhugavert að sjá hann gagnrýna leikstíl liðsins í blöðunum í gær sem danskir blaðamenn túlka sem svo að hann ætli að skipta um þjálfara. Það er áhugavert," sagði Guðjón sem ætlaði að kíkja á sigurhátið AGK í kvöld sem fram fer í íþróttahöllinni í Glostrup.
Handbolti Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Fótbolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira