Innlent

Hvetur til umræðu um innflytjendamál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Johnsen segir mikilvægt að veita útlendingum svigrúm. Mynd/ Anton Brink.
Árni Johnsen segir mikilvægt að veita útlendingum svigrúm. Mynd/ Anton Brink.
Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvetur til þess að útlendingum sem hingað komi sé veitt meira svigrúm. Hann ætlar samt ekki að beita sér sérstaklega í máli Jussanam da Silva sem missti dvalarleyfið sitt og atvinnuleyfi eftir að hún skildi við íslenskan eiginmann sinn.

Árni Johnsen lagði hins vegar fram frumvarp á dögunum ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, um að rússneski rithöfundurinn Madina Salamova, betur þekkt sem Marie Amelie fengi íslenskan ríkisborgararétt eftir að henni var vísað frá Noregi, þar sem hún hefur búið frá barnsaldri. Jussanam sagði við Vísi í kvöld að hún skyldi ekki að íslenskir þingmenn vildu taka upp málstað rússnesku konunnar en ekki sinn.

Árni Johnsen segir að tillagan um ríkisborgararéttinn fyrir Amelie hefði verið til að vekja athygli á því hvað reglur um innflytjendur væru þröngar. „Við bara skelltum þessu fram og það vakti mikla athygli. Og mér finnst bara mikilvægt að vekja á þessu athygli," segir Árni. Hér á landi séu einnig mál sem krefjist mikillar umræðu og mál Jussanam da Silva sé eitt þeirra.

Árni segir mikilvægt að taka tillit til fólks sem sé búið að dvelja í landinu í langan tíma, vera gift hér og tali íslensku vel. „Þá finnst mér þetta fólk hafa áunnið sér allmikinn rétt," segir Árni. Hann segir að Íslendingar þurfi að veita útlendingum sem hingað vilja koma meira svigrúm því Íslendingar sem dvelji erlendis vilji sannarlega að þeim sé veitt svigrúm.






Tengdar fréttir

Jussanam vill fá sama stuðning og Marie Amelie

„Þetta er svolítið skrýtið af því að þessi kona hefur engin tengsl við Ísland. Hún er ekki hérna og vill ekki vera hérna," segir Jussanam da Silva, brasilísk kona sem hefur dvalið hér um skeið. Jussanam starfaði í tvö ár í Hlíðarskóla en vinnuveitandi hennar þurfti að segja henni upp störfum þar sem hún fékk ekki áframhaldandi atvinnu- og dvalarleyfi. Ástæðan fyrir því var sú að hún skildi við íslenskan eiginmann sinn. Hún á sér hins vegar þá ósk heitasta að búa hér til frambúðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×